Fréttasafn



20. nóv. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Tækni- og hugverkaþing SI í Hörpu

Stórsókn til framtíðar er yfirskrift Tækni- og hugverkaþings SI verður haldið í Norðurljósum í Hörpu fimmtudaginn 28. nóvember kl. 16.00.

Atvinnugreinar sem byggja á tækni og hugviti hafa ótakmarkaða möguleika á að vaxa. Á þinginu verður ljósi varpað á stöðu hugverkaiðnaðar á Íslandi, kynntar verða fjölbreyttar greinar hugverkaiðnaðarins og tækifæri til framtíðar. Á þinginu kynnir nýsköpunarráðherra aðgerðir í þágu nýsköpunarumhverfisins sem koma í framhaldi af nýsköpunarstefnu fyrir Ísland sem kynnt var í haust.

Þátttakendur í dagskrá þingsins

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
  • Gísli Kr. Katrínarson, framkvæmdastjóri hjá Advania Data Centers
  • Soffía Kristín Þórðardóttir, forstöðumaður hjá Origo
  • Hilmar Bragi Janusson, forstjóri Genís
  • Ingólfur Vignir Ævarsson, markaðsstjóri 1939 Games
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Valgerður Halldórsdóttir, stjórnarmaður í Sagafilm
  • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
  • Tryggvi Hjaltason, formaður Hugverkaráðs SI
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI

Boðið verður upp á léttar veitingar að þingi loknu.

Hér er hægt að skrá sig á þingið. 

Taekni-og-hugverkathing-SI_thatttakendur

Auglysing_loka_1574247727705