YARM hlaut Skúlaverðlaunin 2017
Skúlaverðlaunin 2017 voru afhent í gær á fyrsta opnunardegi sýningarinnar Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur en verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sem afhenti verðlaunin. Erla Svava Sigurðardóttir hlaut verðlaunin en hún hannar og framleiðir undir merkinu YARM. Verðlaunin hlaut hún fyrir prjónaða kanínu fyrir börn. Kanínan er stór og prjónuð með höndunum úr mjög grófu/þykku garni sem Erla Svava spinnur og þæfir sjálf. Kanínan er hugsuð sem fallegur hlutur í barnaherbergið með mikið notagildi en hún þolir heilmikið hnoð og hnjask.
Að auki var veitt ein viðurkenning en hana hlaut Inga Birna Friðjónsdóttir sem hannar undir merkinu UNGI by The Bomber Factory. Hún hlaut viðurkenninguna fyrir barnajakka sem eru saumaðir úr endurunnum efnum.
Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur er haldin til 27. nóvember og eru þátttakendur 55 talsins. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni gátu tilkynnt nýja vöru í verðlaunasamkeppnina um besta nýja hlutinn. Skilyrðin voru að hlutirnir máttu hvorki hafa verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Tæplega tuttugu tillögur bárust og faglega valnefnd skipuðu Ragna Fróða textíl- og fatahönnuður og Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður.
Myndir: Guðmundi Ingólfssyni/ÍMYND