Fréttasafn



Fréttasafn: 2011 (Síða 5)

Fyrirsagnalisti

7. júl. 2011 : Drekinn!

Í einu atriði í sjónvarpsþáttum Fóstbræðra kom starfsmaður undrandi út af skrifstofu yfirmanns síns, með þá nýju vitneskju að hann væri drekinn. Ætlunin hafði hins vegar verið að segja honum að hann væri rekinn. Sú misheyrn kom upp í hugann þegar fylgst var með störfum Alþingis nú í vor.

6. júl. 2011 : Innanríkisráðherra láti bjóða út eina brú!

Síðan bankahrunið reið yfir okkur Íslendinga hafa ráðamenn að eigin sögn barist við að rétta af stöðuna og koma lagi á reksturinn. Um sumt hefur vafalaust eitthvað miðað en eitt hefur algjörlega farið fram hjá okkar ágætu ráðamönnum.

6. júl. 2011 : Hugsum stórt 

Þjóð sem hefur efni á að greiða 80 milljarða í atvinnuleysisbætur á 3 árum, hlýtur frekar að hafa efni á að greiða milljarðatugi í atvinnuskapandi, arðbær og uppbyggileg verkefni. Þessari skoðun hreyfði fyrrverandi samgönguráðherra, Kristján Möller, á einkar vel heppnuðum morgunfundi Samtaka atvinnulífsins þann 29. júní sl. um stórframkvæmdir í samgöngum á Íslandi.

29. jún. 2011 : Framkvæmdastjóri SI: Nú er tækifæri að auka öryggi á vegum og efla hagvöxt

Á opnum fundi SA um samgöngumál sem fram fór í morgun sagði Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), að nýjar samgönguframkvæmdir snúist um að auka öryggi á vegum auk þess að skapa ný störf og efla hagvöxt.

29. jún. 2011 : Ívilnanir vegna nýfjárfestinga

Á síðasta ári tók gildi rammalöggjöf um ívilnanir vegna nýfjárfestinga sem kveður á um að heimilt sé að veita fyrirtækjum afmarkaðar ívilnanir ef sannað þykir að starfsemi fyrirtækisins hafi í för með sér umtalsverðan ávinning fyrir þjóðarbúið. Ingvi Már Pálsson, lögfræðingur hjá Iðnaðarráðuneyti fjallaði um málið á fundi hjá Samtökum iðnaðarins.

29. jún. 2011 : 100 ungmenni við sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli

Um eitt hundrað ungmenni eru í sumarvinnu hjá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði og eru flest þeirra framhaldsskóla- eða háskólanemar. Elína Jónsdóttir sérfræðingur í mannauðsteymi fyrirtækisins segir að um 500 umsóknir hafi borist frá ungu fólki um sumarstörf.

27. jún. 2011 : Velheppnað stefnumót fyrirtækja og stofnana á heilbrigðissviði

Síðastliðinn föstudag fór fram, stefnumót fyrirtækja og stofnana á heilbrigðissviði í húsakynnum Háskólans í Reykjavík. Stefnumótið var fjölsótt og þótti takast vel. Tilgangurinn var að efna til og skilgreina samstarfsverkefni ólíkra aðila um betri lausnir fyrir minna fé í íslensku heilbrigðiskerfi. Verkefni  sem fela í sér tækifæri til verðmætasköpunar og útflutnings fyrirtækja í greininni.

27. jún. 2011 : Opinn fundur um samgöngumál á miðvikudaginn 

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um samgöngumál
miðvikudaginn 29. júní  kl. 8.30 - 10.00 á Grand Hótel Reykjavík - Gullteig. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að ráðast nú þegar í arðbærar samgöngufjárfestingar til að auka öryggi, fjölga störfum og efla hagvöxt.

23. jún. 2011 : Hönnun í útflutning - skrifað undir samstarfssamninga

Þróunarverkefnið Hönnun í útflutning er komið á fullt skrið en verkefnið er leitt af Íslandsstofu í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarsins. Þriðjudaginn 21. júní skrifuðu fyrirtæki og hönnuðir sín á milli um samstarf í verkefninu og er þar með hafið fimm mánaða ferli þar sem fyrirtæki og hönnuðir vinna að frumgerð af því sem skal gera.

 

22. jún. 2011 : ÍAV dæmdar verðbætur í Hæstarétti

Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness um rétt ÍAV til greiðslu verðbóta vegna byggingar sundlaugar og viðbyggingar við íþróttahús á Álftanesi. Var Fasteignafélagið Fasteign ehf. dæmt til að greiða ÍAV 82 milljónir króna og þar af námu verðbæturnar skv. dómnum 75 milljónir króna.

22. jún. 2011 : Aukinn stuðningur atvinnulífsins við háskólastarf

Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins og Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun hafa tekið höndum saman um að styðja við og efla háskólastarf á Íslandi með 200 milljón króna framlagi til Háskólans í Reykjavík.

21. jún. 2011 : Samtök atvinnulífsins staðfesta kjarasamninga þrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnar Íslands

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að staðfesta gildistöku kjarasamninga frá 22. júní 2011 í samræmi við ákvæði kjarasamninganna sem undirritaðir voru 5. maí sl. Með því öðlast samningarnir gildi til 31. janúar 2014. Forsendur samninganna verða metnar af sérstakri forsendunefnd aðila í janúar 2012 og janúar 2013 og ef þær standast halda þeir gildi sínu.

21. jún. 2011 : Brúðkaup í höndum meistara

Prýði, hópur þjónustuiðngreina innan SI, hafa gert samkomulag við ungt par um að sjá um undirbúning sem lýtur að væntanlegu brúðkaupi þeirra þeim að kostnaðarlausu. Athöfnin fer fram á Ljósanótt í Reykjanesbæ og verður gestum hátíðarinnar boðið að fylgjast með hluta af undirbúningi s.s. förðun, hárgreiðslu og ljósmyndun.

10. jún. 2011 : Mikilvæg niðurstaða - Erlendu lánin ólögleg

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Landsbankans gegn þrotabúi Mótormax. Deilt var um lán, sem Landsbankinn taldi að fæli í sér skuldbindingu í erlendri mynt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að lánið væri í íslenskum krónum en gengistryggt og þar með ólöglegt.

9. jún. 2011 : Göngum saman fær styrk frá Landssambandi bakarameistara

Síðastliðinn mánudag fékk styrktarfélagið Göngum saman afhentan styrk að upphæð 1.080.000,- krónur. Fénu söfnuðu félagsmenn Landssambands bakarameistara (LABAK) með sölu á Brjóstabollunni um mæðradagshelgina.

8. jún. 2011 : Íbúðalánasjóður dæmdur til greiða félagsmanni SI skaðabætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Íbúðalánasjóð til að greiða byggingafyrirtækinu Norðurvík ehf. skaðabætur vegna ólögmætrar kröfu sjóðsins um bankaábyrgð samhliða lánveitingu úr sjóðnum. SI sáu um rekstur dómsmálsins fyrir Norðurvík ehf.

8. jún. 2011 : Veikburða hagvöxtur

Þótt hagvöxtur hafi aukist um 2% að raungildi á fyrsta ársfjórðungi 2010 frá fjórðungnum á undan er hagvöxturinn veikburða að mati Bjarna Más Gylfasonar, hagfræðings Samtaka iðnaðarins. „Það mælist 1,6% samdráttur í einkaneyslu, 6,8% í fjárfestingu og 8,2% samdráttur í útflutningi. Þessi vöxtur er drifinn áfram af birgðabreytingum, þ.e. vöruframleiðslu sem á eftir að selja.

8. jún. 2011 : Vel heppnuð þátttaka í Nordic Game 2011

CAOZ og Plain Vanilla hlutu þróunarstyrki á tölvuleikjaráðstefnunni Nordic Game Conference 2011 sem haldin var í Malmö í maí. Þá voru fyrirtækin CCP, Gogogic og Fancy Pants Global tilnefnd til Nordic Game-verðlauna.

8. jún. 2011 : Hörður G. Kristinsson hlýtur Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2011

Dr. Hörður G. Kristinsson rannsóknastjóri Matís hlaut Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir 2011 sem voru afhent á Rannsóknaþingi Rannís í dag. Tók Hörður við viðurkenningunni úr hendi forsætisráðherra sem jafnframt er formaður Vísinda- og tækniráðs.

8. jún. 2011 : CCP og Sony í samstarf

Sony Computer Entertainment Inc. og íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hafa gert samstarfssamning um útgáfu á tölvuleiknum DUST 514 fyrir Playstation 3 leikjatölvuna.
Síða 5 af 10