Fréttasafn



Fréttasafn: 2015 (Síða 8)

Fyrirsagnalisti

23. feb. 2015 Almennar fréttir : Kosning til stjórnar Samtaka iðnaðarins

Nú stendur yfir kosning til stjórnar Samtaka iðnaðarins. Félagsmenn hafa fengið sent lykilorð. Smellið á hlekkinn til að kjósa.

21. feb. 2015 Menntun : Marel er menntafyrirtæki ársins

Menntafyrirtæki ársins 2015 er Marel, eitt af framsæknustu fyrirtækjum landsins. Marel er í fararbroddi þegar kemur að menntun og starfsþróun starfsmanna. Lögð er áhersla á markvissa  þjálfun og símenntun fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins.

19. feb. 2015 Iðnaður og hugverk : Kaka ársins færð Kvenréttindafélagi Íslands í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna

Forsvarsmenn Landssambands bakarameistara, LABAK, mörkuðu upphaf sölu Köku ársins 2015 með því að færa Kvenréttindafélagi Íslands kökuna að gjöf í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Hallveigarstöðum í dag.

15. feb. 2015 Almennar fréttir : Í kjöri til stjórnar SI

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins 5. mars næstkomandi verður kosið til stjórnar. Árlega er kosið um formann og að þessu sinni er kosið um fimm almenn stjórnarsæti.

13. feb. 2015 Menntun : Stelpur forrita með Skema og /syst/rum

Skema og /sys/tur, félag kvenna í Tölvunarfræðideild við Háskólann í Reykjavík, hafa tekið höndum saman og ætla á vorönn 2015 að bjóða upp á tækninámskeið fyrir skapandi stelpur á aldrinum 16-20  ára. 

13. feb. 2015 Menntun : Menntastofa Samtaka iðnaðarins

Menntastofa Samtaka iðnaðarins verður haldin á Menntadegi atvinnulífsins 19. febrúar kl. 12.30 á Hilton Reykjavík Nordica. Fjallað verður um hvaða leiðir eru færar til að kveikja áhuga fleiri nemenda.

13. feb. 2015 Iðnaður og hugverk : Sykur er ekki ávanabindandi eitur

Fullyrðingar um að sykur sé ávanabindandi líkt og áfengi eða tóbak eiga ekki við vísindaleg rök að styðjast. Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðmaður matvælasviðs gagnrýnir umfjöllun um skaðsemi sykurs og matvæla sem innhalda sykur í grein í Fréttablaðinu í dag.

11. feb. 2015 Menntun : Úthlutaði styrkjum að fjárhæð átta milljóna

Fyrsti aðalfundur sjóðsins Forritara framtíðarinnar var haldinn í húsakynnum Reiknistofu bankanna (RB) 5. febrúar síðastliðinn. Sjóðurinn hóf starfsemi sína í byrjun árs 2014 og er meginhlutverk hans að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. 

11. feb. 2015 Menntun : Samtök iðnaðarins gerast bakhjarl Team Spark

Samtök iðnaðarins hafa gerst bakhjarl Team Spark en undirritun fór fram á UT Messunni í Hörpu nú um helgina. Team Spark er lið verkfræðinema við Háskóla Íslands sem hanna og smíða rafkappakstursbíla til keppni á alþjóðlegum vettvangi í „Formula Student“ keppninni.

10. feb. 2015 Iðnaður og hugverk : Aldrei fleiri þátttakendur á fagráðstefnu UT Messu

UT Messan fór fram í Hörpu um helgina og sóttu um 9000 manns viðburðinn að þessu sinni. Þar af sóttu um þúsund manns fagráðstefnu UT Messunnar á föstudag og hafa aldrei verið fleiri þátttakendur. Boðið var upp á 45 fyrirlestra á 10 mismunandi þemalínum, þar sem bæði innlendir og erlendir sérfræðingar héldu tölur.

9. feb. 2015 Starfsumhverfi : Höft hefta

Undanfarna daga hefur mikið verið rætt um gjaldeyrishöft og þann skaða sem þau valda íslenskum fyrirtækjum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI fjallar um skaðsemi hafta í Fréttablaðinu í dag.

6. feb. 2015 Starfsumhverfi : Hvöttu til skilvirkari Seðlabanka

Samtök iðnaðarins áttu rúmlega klukkutíma langan fund með fjármálaráðherra í gær þar sem þau hvöttu hann meðal annars til að beita sér fyrir skilvirkari afgreiðslu undanþágubeiðna hjá Seðlabanka Íslands. Langur afgreiðslutími hjá gjaldeyriseftirliti bankans og óljós mörk eru á meðal þess sem veldur fjárfestum og fyrirtækjum vandræðum.

4. feb. 2015 Gæðastjórnun : Efnamóttakan og Sjónarás hljóta ISO 14001 umhverfisvottun

Efnamóttakan hf. og Sjónarás ehf. (áður Gámaþjónusta Austurlands-Sjónarás) hafa hlotið ISO 14001 umhverfisvottun. Efnamóttakan er fyrsta spilliefnamóttaka landsins til að hljóta slíka vottun.

4. feb. 2015 Lögfræðileg málefni : Kröfu íslenska gámafélagsins um afhendingu útboðsgagna hafnað

Kröfu Íslenska gámafélagsins um að fá afhent gögn vegna útboðs um sorphirðu í Ölfusi í lok árs 2013 var hafnað í Héraðsdómi Suðurlands fyrir helgi. Taldi dómurinn  sig ekki geta tekið afstöðu þar sem einkamál hefði verið höfðað í Héraðsdómi Reykjavíkur milli beggja aðila og Gámaþjónustunnar.

2. feb. 2015 Iðnaður og hugverk : UT messan 2015 - fagráðstefna og sýning

UTmessan 2015 fer fram í Hörpu dagana 6. og 7. febrúar. Markmið UT messunnar er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er í þeim tilgangi að fjölga þeim sem velja tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang.

2. feb. 2015 Iðnaður og hugverk : Dagur íslensks prentiðnaðar

Þann 6. febrúar 2015 standa IÐAN fræðslusetur, Félag bókagerðarmanna og Samtök iðnaðarins, fyrir Degi íslensks prentiðnaðar. Á þessum degi ætlar starfsfólk í prent- útgáfu og hönnunariðnaði að hittast í nýju húsnæði IÐUNNAR, Vatnagörðum 20 og fræðast og skemmta sér saman.

2. feb. 2015 Starfsumhverfi : Grafalvarlegt að fyrirtæki flytji höfuðstöðvar úr landi vegna hafta

Eigendur plastframleiðslufyrirtækisins Promens hafa ákveðið að flytja höfuðstöðvar þess úr landi eftir að Seðlabankinn hafnaði beiðni um undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir þetta dæmi um skaðsemi haftanna í viðtali við Fréttastofu Stöðvar 2 sl. laugardag.

30. jan. 2015 Iðnaður og hugverk : Nýjung frá Henson

Henson kynnir þessa dagana dótturfyrirtæki sitt Combishirts. Fyrirtækið framleiðir íþróttatreyjur sem sameina tvö félagslið. Treyjur sem þessar hafa ekki verið fáanlegar áður, hvorki hér né erlendis. Ný tækni gerir framleiðsluna mögulega og vinnur Combishirts nú að því að koma vörunum á framfæri erlendis.

26. jan. 2015 Almennar fréttir : Stjórn SI mótmælir áformum um slit aðildarviðræðna

Stjórn Samtaka iðnaðarins ítrekar fyrri afstöðu sína um aðildarviðræður við Evrópusambandið og mótmælir áformum ríkisstjórnar um að slíta viðræðum. Ályktun þess efnis var samþykkt á stjórnarfundi samtakanna í morgun.

22. jan. 2015 Iðnaður og hugverk : Fjármálaráðherra í skoðunarferð um gagnaver á Reykjanesi

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra er nú í skoðunarferð á Reykjanesi þar sem hann heimsækir gagnaver á vegum Advania og Verne í boði Samtaka gagnavera á Íslandi. Með Bjarna í för er framkvæmdastjóri SI, Almar Guðmundsson.

Síða 8 af 9