Fréttasafn



19. okt. 2016 Iðnaður og hugverk

Alþjóðlegi prentdagurinn í dag

Alþjóðlegi prentdagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Tilgangurinn er að vekja athygli á því sem vel er gert í heimi prentiðnaðarins. Í tilefni dagsins eru samfélagsmiðlarnir notaðir til að deila upplýsingum sem tengjast prentiðnaði með myllumerkinu #IPD16. Markmiðið er að minna á að prent er alls staðar og hversu mikil sköpun í prenti á sér stað út um allan heim.