Valmynd
30. apr. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk
Ársfundur Samáls verður 9. maí kl. 8.30-10.00 í Kaldalóni í Hörpu. Horft verður til framtíðar og verða umhverfis- og öryggismál í brennidepli. Um leið verður þess minnst að hálf öld er liðin frá því álframleiðsla hófst á Íslandi. Fundarstjóri er Sólveig Bergmann.
Dagskrá
8:00 - Morgunverður. 8:30 - Ársfundur.
· Staða og horfur í áliðnaði - Magnús Þór Ásmundsson stjórnarformaður Samáls og forstjóri Alcoa Fjarðaáls.
· Ávarp - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
· Verðmætasköpun í hálfa öld - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
· Nýsköpun í öryggismálum - Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri AMS.
· Fókusinn er á umhverfið - Steinunn Dögg Steinsen framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfismála Norðuráli.
· Stefnumótun út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna - Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu.
· Endurvinnsla áls og hringrásarhagkerfið - Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls.
10:00 - Kaffispjall að loknum fundi.
Fundargestum gefst kostur á að skoða nýjan rafbíl úr frumframleiddu og endurunnu áli, Jaguar I-Pace. Þá gefst kostur á að spreyta sig á öryggisþjálfun í sýndarveruleika í boði Statnett.
Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar.
Aðgangur er öllum opinn. Hér er hægt að skrá sig.