Ásókn hins opinbera í lykilstarfsfólk verkfræðistofanna
Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Reyni Sævarsson, formann Félags ráðgjafarverkfræðinga (FRV), sem segir ásókn hins opinbera í lykilstarfsfólk verkfræðistofanna hafi verið að aukast mikið síðustu misserin og í stað þess að auka umsvifin með því að eiga viðskipti við verkfræðistofurnar sé hið opinbera að fjölga fólki hjá sér en um sé að ræða sérfræðinga sem verkfræðistofurnar hafi kostað miklu til að þjálfa.
Í fréttinni kemur fram að samkvæmt nýrri könnun sem Samtök iðnaðarins gerðu meðal aðildarfélaga FRV telja 75% þeirra að ráðningar hins opinbera á lykilstarfsfólki hafi aukist til muna á síðustu árum og 92% fyrirtækjanna telja að þetta vegi verulega að samkeppnishæfni þeirra á markaði. „Þetta er mjög afdráttarlaust og það finna öll fyrirtæki sterklega fyrir þessu. Þetta þýðir bara að það er búið að draga úr okkur tennurnar varðandi það að sækja á erlenda markaði því það þarf mikla reynslu í það.“
Þjóðhagslegir hagsmunir að þekkingin lokist ekki inni á stofnunum
Reynir segir jafnframt í fréttinni það vera kaldhæðnislegt að stofnanirnar sem taki þessa starfsmenn þurfi mikið á verkfræðistofunum að halda. „Stóra gildið í því að vera á markaðnum er að við getum unnið fyrir alla. Það er betra að reynsluboltarnir fáu séu á markaðnum þar sem þeir geta hjálpað öllum. Annars getur þekkingin lokast inni á stofnununum.“ Hér sé um þjóðhagslega hagsmuni að ræða. Íslendingar hafi náð miklum árangri frá því um 1960 þegar flóknar framkvæmdir eins og við virkjanir hafi farið af stað. „Nú erum við meðal þeirra fremstu á Norðurlöndunum í sumu. Þetta hefðum við aldrei getað ef allir hefðu verið fastir inni á einhverjum stofnunum. Nú erum við að taka u-beygju sem er grátlega vitlaust.“ Þá kemur fram í fréttinni að Reynir segi það hafi verið kannað meðal kollega á hinum Norðurlöndunum hvernig þessi mál væru að þróast þar. „Þeir kannast ekki við neina svona breytingu hjá sér. Mín upplifun er sú að við séum að ganga í öfuga átt.“
Fréttablaðið / Frettabladid.is, 13. janúar 2020.