Átta bjóða sig fram í fjögur stjórnarsæti SI
Framboðsfrestur til stjórnar Samtaka iðnaðarins er liðinn. Guðrún Hafsteinsdóttir er ein í framboði til formanns. Kosið er um fjögur önnur stjórnarsæti og bárust framboð frá eftirfarandi:
- Agnes Ósk Guðjónsdóttir, GK-Snyrtistofa
 - Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari
 - Daníel Óli Óðinsson, JSÓ Járnsmiðja
 - Eggert Árni Gíslason, Síld og fiskur
 - Guðmundur Skúli Viðarsson, ljósmyndari
 - Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál
 - Magnús Helgason, Launafl
 - Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV
 
Aðalfundur SI verður haldinn fimmtudaginn 7. mars næstkomandi og kosning sem er rafræn hefst 21. febrúar.

