Fréttasafn



7. mar. 2017 Almennar fréttir

Innviðir í samgöngum, raforku og samskiptum á Iðnþingi 2017

Það styttist í Iðnþing Samtaka iðnaðarins sem fer fram í Silfurbergi í Hörpu á fimmtudaginn kl. 14.00 - 16.30. Á þinginu sem ber yfirskriftina „Öflugir innviðir – Lífæðar samfélagsins“ verður farið yfir uppbyggingu helstu innviða landsins í samgöngum, raforku og gagnatengingum. Þar kemur saman forystufólk úr atvinnulífinu, sérfræðingar og ráðherrar til að ræða um mikilvægi innviða fyrir samkeppnishæfni Íslands. 

Í upphafi þingsins flytja ávörp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þá verða umræður um helstu áskoranir í uppbyggingu innviða en öflugir innviðir eru undirstaða hagvaxtar og velferðar og skila fjölbreyttum og góðum störfum til samfélagsins.

Dagskrá

Ávarp formanns SI

  • Guðrún Hafsteinsdóttir


Ávarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

 

Glímt við þjóðveginn – Samgöngur og uppbygging

  • Ásthildur Sturludóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur
  • Baldvin Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Eflu
  • Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERK
  • Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

 

Ég á mér draum um straum – Raforka og orkuskipti

  • Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
  • Guðrún Halla Finnsdóttir, verkefnastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli
  • Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
  • Sveinn I. Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís

 

Er ekki tími til kominn að tengja? – Samskipti og gögn

  • Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og rekstrar hjá Advania
  • Orri Hauksson, forstjóri Símans
  • Ragnheiður H. Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Marel
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

 

Farðu alla leið - Markmið og metnaður

  • Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI


Skráning á Iðnþingið.