Fréttasafn



10. sep. 2020 Almennar fréttir Ímynd

Íslenskt - láttu það ganga

Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í í stöðugri hringrás. Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem hefur verið sett af stað. Í tilkynningu kemur fram að tilgangur átaksins sé að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu.

Með þessu átaki minnum við á ágæti íslenskrar framleiðslu og þjónustu og tökum höndum saman við atvinnulífið við að sporna gegn áhrifum COVID-19,“ segja Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

„Íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir miklu höggi undanfarið og átakið er einn liður í því að bregðast við - bretta upp ermar og koma því í gang að nýju. Við viljum fá þjóðina í lið með okkur,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Í átakinu eru Íslendingar hvattir til að velja íslenska verslun, framleiðslu, hugvit og upplifanir. Með vali á innlendri framleiðslu- og þjónustustarfsemi verður til hringrás sem stuðlar að nýjum störfum, verðmætasköpun og efnahagslegum stöðugleika. „Með samtakamætti okkar allra getum við staðið vörð um íslenska framleiðslu og þjónustu. Saman látum við þetta ganga og það skilar sér aftur til þín, mín og okkar allra,“ segir Sigurður.

Hér er hægt að nálgast sjónvarpsauglýsingu átaksins.


Youtube

2020-09-10-all

mbl.is, 9. september 2020. 

Vísir, 9. september 2020.

Húni, 9 september 2020.

Fréttatíminn, 9. september 2020.

Bændablaðið, 10. september 2020.

Skessuhorn, 10. september 2020.

Trölli, 12. september 2020.

Fjarðarfréttir, 12. september 2020.

Tígull, 12. september 2020.