Menntadagur atvinnulífsins 2016
Menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu verður í kastljósinu á menntadegi atvinnulífsins 28. janúar næstkomandi en þetta er í þriðja sinn sem dagurinn er haldinn. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá auk þess sem menntaverðlaun atvinnulífsins verða veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Menntadagurinn er haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og er vissara að skrá þátttöku tímanlega til að tryggja sér pláss.
Sameiginleg dagskrá er frá kl. 8.30-10 en kl. 10.30-12 er boðið upp á fjölbreyttar málstofur þar sem samtökin fjalla um brýnustu menntamálin innan einstakra atvinnugreina. Hægt er að skrá sig eingöngu á sameiginlegu dagskrána eða daginn í heild.
Einnig verður boðið upp á kynningar fræðslusjóða og fræðsluaðila á sérstöku menntatorgi en þar geta stjórnendur m.a. fengið greinargóðar upplýsingar um hvernig hægt er á einfaldan hátt að sækja um styrki til fræðslu starfsfólks til að afla það í leik og starfi.
DAGSKRÁ:
8.30 Setning.
Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður Samtaka atvinnulífsins. Þúsundir nýrra starfa. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
10.00 Kaffi og með því.
Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi.
10.30 Menntastofur samtaka í atvinnulífinu.
SAF, SFS, SFF, SI og SVÞ ræða brýnustu menntamálin innan einstakra atvinnugreina. Menntastefna Samtaka iðnaðarins verður helguð umfjöllun um vinnustaðarnám.
Fundarstjóri: Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Allir velkomnir – ekkert þátttökugjald.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér