Menntaverðlaun atvinnulífsins 2015 – óskað eftir tilnefningum
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 19. febrúar. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 19. janúar.
Menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2015 verða útnefnd en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.
Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru m.a.:
- að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins
- stuðlað sé að menntun og fræðslu umfram það sem ætlast er til í lögum og reglugerðum
- að starfsfólk taki virkan þátt
- að hvatning til frekara náms sé til staðar
Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru m.a.:
- að lögð sé stund á nýsköpun í menntun, -innan fyrirtækis eða í samstarfi fyrirtækja
- að verkefnið leiði af sér að menntastig hækki
- samstarf fyrirtækja og samfélags sé til staðar um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja
Tilnefningar sendist í tölvupósti á sa@sa.is – eigi síðar en 19. janúar 2015
Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins en þetta er í annað sinn sem dagurinn er haldinn. Menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu verður þar í kastljósinu Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni SAF, SFF, SFS, Samorku, SI, SVÞ og SA.
Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.