Fréttasafn



  • Mannrettindadomstoll_Evropu

27. apr. 2010

Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu

Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) kvað upp dóm um lögmæti iðnaðarmálagjalds í morgun. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að lögin um iðnaðarmálagjaldið stæðust ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu.

Niðurstaðan eru Samtökum iðnaðarins vonbrigði. Tvívegis hefur Hæstiréttur Íslands fjallað um málið og komist að annarri niðurstöðu en nú hefur MDE kveðið upp sinn dóm. Dómurinn kemur hins vegar ekki alveg á óvart því flest mál sem hann tekur á annað borð fyrir af þessu tagi falla sækjanda í hag. Það sýnir tölfræðin.

Samtök iðnaðarins áttu ekki aðild að þessum dómsmálum enda þótt þau vörðuðu gjald sem iðnaðurinn í landinu greiðir og rennur til þeirra. Það var ríkið sem var varnaraðili í málinu enda fjallað um lög frá Alþingi sem hafa verið í gildi um áratugaskeið.

Niðurstaðan hefur mikil áhrif á rekstur Samtaka iðnaðarins og þar með hagsmunagæslu iðnaðarins í landinu. Niðurstaðan mun einnig hafa áhrif á fjármögnun annarra hagsmunasamtaka og verkefna í atvinnulífinu.

Samtök iðnaðarins munu þegar í stað óska eftir viðræðum við iðnaðarráðherra um framhald málsins og hvernig íslensk stjórnvöld hyggjast bregðast við.

Samtök iðnaðarins munu leggja á það höfuðáherslu að þjónusta við félagsmenn og barátta fyrir hagsmunum iðnaðarins verði öflug í framtíðinni þrátt fyrir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu.

Lög um iðnaðarmálagjald er nr. 134/1993

Fréttatilkynning frá MDE

Dómur MDE í heild sinni