Fréttasafn



  • Stjórn Clean Tech 2010

2. jún. 2010

Clean Tech Iceland, ný samtök fyrirtækja í grænni tækni

Samtök fyrirtækja í grænni tækni, Clean Tech Iceland, voru stofnuð í gær. Að stofnuninni stóðu Samtök iðnaðarins og fyrirtæki sem vinna að þróun og markaðssetningu á grænni tækni. Samtökin munu starfa sem starfsgreinahópur innan SI.

Hugmyndir um stofnun slíkra samtaka hafa verið uppi um nokkurt skeið en mikil gróska er í málum er snúa að grænni tækni og hreinni orku. Síðastliðið haust fóru SI ásamt fleiri aðilum í stefnumótun á þessu sviði . Þar kom m.a. fram áhugi á að auka samstarf fyrirtækja sem eru að þróa nýja umhverfistækni.

Meðal þess sem samtökin munu vinna að er að styrkja netverk fyrirtækjanna, auka samstarf og deila þekkingu og reynslu. Áherslurnar liggja á mörgum sviðum einkum í markaðsmálum, menntamálum, varðandi fjármögnun, þátttöku í norrænu starfi og vera stjórnvöldum til stuðnings við stefnumótun.

Á stofnfundinum var kosin fimm mann stjórn auk tveggja varamanna. Formaður var kosinn Jón Ágúst Þorsteinsson, Marorku. Meðstjórnendur voru kosnir Ásbjörn Torfason, Vistvænni orku, Guðný Reimarsdóttir, Ecoprocess Nord, Ingvar Kristinsson, Fjölblendi og K.C. Tran, Carbon Recycling International. Varamenn eru Freyr Hólm Ketilsson, ReMake Electric og Eiríkur Sveinn Hrafnsson, Greenqloud.