Fréttasafn



  • Iðnir krakkar eftir Sigrúnu Eldjárn

22. jún. 2010

Iðnir krakkar

 

Út er komin barnabókin IÐNIR KRAKKAR með texta og myndum eftir Sigrúnu Eldjárn. Í henni er sagt frá systkinunum Siggu Láru og Kára sem skoða nýja húsið sem þau flytjast bráðum í. Þar lenda þau í ævintýrum og kynnast því sem iðnaðarmenn gera.

Útgefandi er IÐNÚ. Bókin er gefin út með styrk frá Samtökum iðnaðarins. Henni verður dreift til  grunnskóla í haust.