Fréttasafn



  • Hringur

20. okt. 2011

Gullsmiðadagurinn

Laugardaginn 22. október nk. munu félagar í Félagi íslenskra gullsmiða (FÍG) halda hátíðlegan Gullsmiðadaginn. 

Þetta er í fyrsta sinn sem Gullsmiðadagurinn er haldinn og er það gert í tengslum við afmæli félagsins, 19. október, en ætlunin er að þetta verði að árvissum viðburði.  

Markmið Gullsmiðadagsins er vekja athygli á fagmennsku í greininni og fræða almenning um störf gullsmiða og mikilvægi þess að versla við faglærða.

Þetta árið ætla gullsmiðir að leggja áherslu á þrif og almennt viðhald á skartgripum og bjóða gestum og gangandi að koma með uppáhaldsskartgripinn sinn, fá létt þrif á honum og spjalla við fagmanninn.

Í skartgripum liggja oft mikil verðmæti, tilfinningaleg jafnt sem efnisleg og það virðist stundum gleymast að þeir þarfnast þrifa og viðhalds.

Gullsmíði er krefjandi og viðamikið nám þar sem tekið er á mörgum þáttum tengdum faginu.  Að versla við faglærðan gullsmið er bæði gæðastimpill með vörunni og felur oftast í sér ábyrgð á henni sem ekki er hægt að ganga að vísri annarstaðar.

Þennan dag mun gullsmiðurinn þinn vera til taks í versluninni og svara þeim spurningum sem sem brenna á vörum gesta.

Gullsmiðir sem taka á móti gestum:  

Hafnarfjörður 

  • Fríða, Strandgötu 43 
  • Gullsmiðjan, Lækjargötu 34c
  • Sign gullsmíðaverkstæði, við smábátahöfnina 

Kópavogur 

  • Carat, Smáralind

Reykjanesbær

  • Georg V. Hannah, Hafnargötu 49 
  • Gull og hönnun, Njarðvíkurbraut 9

Reykjavík 

  • Anna María Design, Skólavörðustíg 3 
  • Aurum ehf, Bankastræti 4
  • Gull og Silfur, á miðjum Laugavegi 
  • Gull og silfursmiðjan Erna, Skipholti 3
  • Gullkistan, Frakkastíg 10 
  • Gullkúnst Helgu, Laugavegi 11 
  • GÞ Skartgripir og úr, Bankastræti 12
  • Meba, Kringlunni 
  • Orr gullsmiðir, Bankastræti 11
  • Ófeigur, gullsmiðja og listmunahús, Skólavörðustíg 5
  • Tímadjásn, skartgripaverslun, Grímsbæ