Fréttasafn



  • Borgartún 35

4. nóv. 2011

Hönnun eykur samkeppnisforskot fyrirtækja

Ráðstefna og sýning í tengslum við verkefnið Hönnun í útflutning verður haldin í  höfuðstöðvum Arion Banka 9. nóvember nk. milli kl. 9:30 – 13:30.

Rannsóknir sýna ótvírætt að hönnun hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja, markaðshlutdeild og samkeppnishæfni.

Á ráðstefnunni mun Anders Fanö frá Dansk Design Center, fjallar um reynslu DDC af þeirri verðmætasköpun sem felst í samstarfi hönnuða og fyrirtækja auk þess sem Thomas Harrit frá hinni margverðlaunuðu hönnunarstofu Harrit-Sörensen ApS segir frá árangursríkum verkefnum fyrirtækisins.

Dagskrá:

Fundarstjóri : Sigurður Þorsteinsson hönnuður, Design Group Italia
9:45 – 10:30        Why do Businesses Need Design?

Anders Fanö, verkefnastjóri hönnunar og nýsköpunar hjá  Dansk Design Center, fjallar um reynslu DDC af því að vinna með fyrirtækjum í útflutningi                          

10:30 – 11:15     Humanfactor Based Design

Thomas Harrit, annar eigandi hönnunarstofunnar Harrit-Sörensen ApS., fjallar um aðferða- og hugmyndafræði fyrirtækisins í hönnun og kynnir árangursrík verkefni. Harrit-Sörensen ApS. hefur unnið til þriggja hönnunarverðlauna árið 2011 (Red Dot, Medical Design Excellence Award (MDEA) og Danish Product Award - Engineering Weekly.

11:15 – 12:00     Afrakstur verkefnisins Hönnun í útflutning kynntur

Markmið verkefnisins Hönnun í útflutning er að leiða saman hönnuði og fyrirtæki í samvinnu um hönnun og framleiðslu á útflutningsvörum. Þátttakendur í verkefninu fengu framlag að upphæð 500.000 kr. til að standa straum af hönnunarkostnaði, gegn a.m.k. jafnháu mótframlagi fyrirtækisins. Fyrirtækin sem tóku þátt í verkefninu eru Amivox, Foss distillery ehf, Glófi, Matorka, Raven Design, Saga Medica, Sif Cosmetics og Triton.

12:00 – 13:30     Hádegisverður / sýning frumgerða útflutningsvara

 

Skráning fer fram á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000

Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson verkefnisstjóri, bjorn@islandsstofa.is og Hermann Ottósson forstöðumaður, hermann@islandsstofa.is.


Hönnun í útflutning er samstarfsverkefni Íslandsstofu, Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Samtaka iðnaðarsins.