Fréttasafn



  • Borgartún 35

2. feb. 2012

Óskað eftir tilnefningum til stjórnar SI og fulltrúaráðs SA 

Í tengslum við Iðnþing fer að venju fram kosning til stjórnar Samtaka iðnaðarins og valdir eru fulltrúar í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins.

Formaður er kjörinn til árs í senn. Núverandi formaður Helgi Magnús­son  hefur setið í sex ár og er því ekki lengur kjörgengur, samkvæmt lögum SI.

Að þessu sinni ganga þrír úr stjórn, Bolli Árnason, Sigsteinn P. Grétarsson  og Vilborg Einarsdóttir, sem gefa kost á sér til endurkjörs. Þeir sex sem næst eru því að ná kjöri í stjórn, taka sæti í ráðgjafaráði SI skv. 9. grein.

Í fulltrúaráði SA eiga sæti 100 full­trúar og þar af hefur SI nú 29. Gera má ráð fyrir að fjöldi þeirra verði svipaður að þessu sinni.

Óskað er eftir tilnefningum til allra þessara trúnaðarstarfa og þær þurfa að hafa borist skrifstofu Samtaka iðnaðarins eigi síðar en 13. febrúar.

Framboð til stjórnar

Haraldur Þór Ólason,  fram­kvæmda­stjóri Furu og Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika gefa kost á sér í formannsembættið.

Bolli Árnason, framkvæmdastjóri GT Tækni, Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marels og Vilborg Einars­dóttir, framkvæmdastjóri Mentors gefa kost á sér til endurkjörs.

Halldór Einarsson, fram­kvæmda­stjóri Hensons og Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP hafa þegar tilkynnt að þeir gefi kost á sér til setu í stjórn Samtakanna.