Fréttasafn



  • Kaka ársins 2012

3. feb. 2012

Jóna Hrönn Bolladóttir fékk Köku ársins afhenta

Landssamband bakarameistara hefur fyrir sið að afhenda einni verðugri konu Köku ársins um leið og hún er kynnt í bakaríum í febrúar ár hvert. Að þessu sinni varð fyrir valinu Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Vídalínskirkju. Hún hefur sinnt óeigingjörnu starfi í þágu barna og ungmenna um árabil og komið víða við í störfum sínum.

Á síðasta ári gaf hún út bók ásamt eiginmanni sínum, Bjarna Karlssyni, presti um líf og störf þeirra hjóna. En þau hafa bæði frá æskuárum tekið þátt í kristilegu starfi og miðlað hugsjónum sínum, trú og orku til annarra. Þau þjóna nú bæði, hvort í sinni sókn, en hafa jafnframt tekið virkan þátt í félags- og stjórnmálum og barist fyrir réttlæti á vettvangi samfélagsins með kærleik og gleði að leiðarljósi.

Að sögn Jónu Hrannar eru prestar miklir sérfræðingar í tertum enda boðnir í margar veislur. Hún segir að í guðfræðideildinni hafi verið grínast með það að bjóða þyrfti upp á námskeið í tertuskurði þar sem prestinum er oft boðið fyrstum að veisluborðinu og þarf því að kunna að skera tertur fallega. Hún telur mikilvægt að gera sér dagamun og veislur með góðum veitingum séu sérlega vel til þess fallin að boða kærleika og trú því þar myndast samfélag gleðinnar og hjörtu fólks eru opnari en á öðrum stundum. Kristur var duglegur að mæta á mannamót og veislur því að hann þekkti leiðina að hjörtum fólks. Jóna Hrönn segist alltaf vera að reyna að draga úr sykurneyslu en svo þurfi að vera góðir nammidagar á milli og þá sé ekki slæmt að velja eðaltertu, hvað þá verðlaunatertu.

Kaka ársins inniheldur meðal annars ljúffenga Freyju karamellu, hnetur og súkkulaði og er komin í bakarí um land allt.