Fréttasafn



  • Honnunarmars2012

21. mar. 2012

Hönnunarmars 2012

HönnunarMars fer fram í fjórða skiptið, dagana 22. - 25. mars 2012. Frá upphafi hafa það verið íslenskir hönnuðir sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga.

HönnunarMars er fjögurra daga hönnunarhátíð í Reykjavík þar sem dagskráin er barmafull af fjölbreyttum og spennandi viðburðum af ýmsu tagi. Hönnuðir bjóða almenningi að kynna sér heim hönnunar með áhugaverðum sýningum og fróðlegum fyrirlestrum sem endurspegla fjölbreytta flóru íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.

Á fyrirlestradegi HönnunarMars, stíga fjórir framsæknir hönnuðir á svið í Gamla Bíó. Meginþema fyrirlestradagsins er samstarf - mikilvægi þess að sækja sér þekkingu úr hinum ýmsu áttum og deila sérþekkingu milli fagsviða. Nánari upplýsingar um fyrirlestradaginn má finna hér.
 

Meðal annara dagskrárliða er sýning húsgagnaframleiðenda í Víkinni Sjóminjasafni í Grandagarði. Íslenskir framleiðendur vilja koma á framfæri nýrri íslenskri framleiðslu þar sem ígrunduð hönnun og frábært handbragð haldast í hendur. Samstarf íslenskra framleiðenda og hönnuða stendur á gömlum merg og er enn að geta af sér ný og sífellt betri húsgögn og innréttingar.

Áhugaverð nýjung fyrir iðnfyrirtæki, upplýsingabrunnurinn www.framleidsla.is, verður kynnt á HönnunarMars. Honum er ætlað að auka verðmætasköpun með því að leiða saman þekkingu, hæfni og framleiðslugetu fyrirtækja og fagmanna. Þar eru aðgengilegar upplýsingar um fyrirtæki, efni og aðferðir. Getur reynst notadrjúgt við nýsköpun í framleiðslu og kennslu. Verkefnið verður kynnt á Samsuðu, samsýningu Félags vöru- og iðnhönnuða í Brimshúsi, Geirsgötu 11.

Þá verður sýning á afrakstri háskólanámskeiðsins „Vistvæn nýsköpun matvæla“ verður haldin í Hönnunar- og arkitektúrsdeild Listaháskóla Íslands. Sýningin er haldin í tengslum við nemendakeppnina EcoTrophelia Iceland 2012 um titilinn ljúffengasta, frumlegasta og vistvænasta matvaran 2012.   

Hönnun á Íslandi er ekki ný af nálinni en gríðarlegur árangur og vitundarvakning hefur átt sér stað á undanförnum árum. HönnunarMarsinn spannar vítt svið, allt frá helstu hönnuðum þjóðarinnar sem sýna hvað í þeim býr, til nýútskrifaðra hönnuða sem stíga sín fyrstu skref. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.

Aðferðafræði hönnunar býr yfir einstökum tækifærum til sköpunar og endursköpunar. HönnunarMarsinn örvar, hvetur og ýtir undir sköpun því að þar mætast hönnuðir, fyrirtæki, framleiðendur og kaupendur; nýir möguleikar og tækifæri verða til.

HönnunarMars er boðberi vorsins og gróskunnar í íslenskri hönnun og lífleg bæjarhátíð. Á HönnunarMars býðst tækifæri að auðga andann og hljóta innblástur af hinni taumlausu sköpunargleði sem ríkir innan hönnunarsamfélagsins. Við hlökkum til að sjá þig á HönnunarMars 2012.