Tækni- og iðnfyrirtæki vara við alvarlegum afleiðingum sjávarútvegsfrumvarpa
Við hvetjum stjórnvöld til þess að hafa í huga hversu víðtæk áhrif fyrirhugaðar breytingar hafa á tækni- og iðnaðarstarfsemi sem tengist sjávarútveginum. Við hörmum að reynt sé að gefa í skyn að áhrif frumvarpsins lúti einungis að fámennum hópi útgerða. Nýleg athugun sjávarklasans leiðir í ljós að rösklega 26% af landsframleiðslunni skýrist með vísan til sjávarútvegs og tengdra greina. Starfsemi flestra tækni- og iðnfyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi hefur þegar orðið fyrir skakkaföllum af þeirri óvissu sem undirbúningur og framkvæmd þessa máls hefur leitt af sér.
ThorIce, Traust Þekking, Frost, Hampiðjan, Samhentir, Skaginn, Samey, Vélfag, Prómens Dalvík, Sjóvélar, Pólar toghlerar, Héðinn, Kæling, Dis, Marport, Egill, Martak, Prómens Tempra, Borgarplast , 3X, Hleragerðin
Umsögn Samtaka iðnaðarins um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða