Fréttasafn



  • Brjostabollan

9. maí 2012

Brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina

Landssamband bakarameistara stendur fyrir sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land dagana 10 – 13. maí til stuðnings við styrktarfélagið Göngum saman. 

Fyrirtæki og einstaklingar eru hvattir til að bjóða upp á brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina og láta þannig gott af sér leiða, brjóstanna vegna.

Styrktarfélagið Göngum saman

Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar  styrkjum í október ár hvert. Félagið var stofnað haustið 2007 og hefur frá stofnun veitt íslenskum rannsóknaraðilum á sviði brjóstakrabbameins um 22 milljónir króna í styrki. Göngum saman  leggur áherslu á miklvægi hreyfingar til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins.

Mæðradagsganga Göngum saman  sunnudaginn 13. maí, kl. 11.

Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn, sunnudaginn 13. maí, kl. 11. Í Reykjavík verður gengið frá skautahöllinni í  Laugardalnum og gengið um dalinn í um það bil klukkustund.

Einnig verður gengið á Akranesi, Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Höfn, Hveragerði, Reykjanesbæ og frá Stórutjarnaskóla. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað er að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is

Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini,  með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman.