Fréttasafn



  • Viðhald fasteigna

28. sep. 2012

Samstarf er lykill að árangri – fundaröð um nýja byggingarreglugerð

Samtök iðnaðarins, Mannvirkjastofnun, Arkitektafélag Íslands, Verkfræðingafélag Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Félag byggingarfulltrúa standa fyrir fundum í október og nóvember um land allt um nýja byggingarreglugerð, samræmingu eftirlits og leiðir til aukinna samskipta innan byggingageirans. 
 

Um opna fundi er að ræða sem ætlaðir eru hönnuðum, tæknimönnum, iðnaðarmönnum, eftirlitsaðilum og öðrum áhugasömum.  

Upphaf verkefnisins má rekja til fundar sem haldinn var á Akureyri í lok mars 2012 þar sem berlega kom fram þörf hjá þessum aðilum að ræða um þær breytingar sem hafa átt sér stað með tilkomu hinna nýju laga og reglugerðar. Í kjölfarið var ákveðið að halda samskonar fundi sem víðast á landinu.

Tilgangur fundanna er að kynna breytt starfsumhverfi mannvirkjageirans, gefa hlutaðeigandi tækifæri til að spyrja þeirra spurninga sem brenna á þeim og koma með ábendingar um hvað betur megi fara.

Fundirnir verða haldnir á Ísafirði, Egilsstöðum, Sauðárkróki, Stykkishólmi, Hellu, Reykjanesbæ og Reykjavík. 

Stað- og dagsetningar funda:

 

5. október, kl. 13.00 – 17.00
Ísafjörður, Edinborgarhúsið /Bryggjusalur

 

 

 

 

19. október, kl. 13.00 – 17.00
Egilsstaðir, Hótel Hérað

 

16. nóvember, kl. 13.00 – 17.00
Reykjanesbær, Flughótel                                           

 

26. október, 13.00 – 17.00
Sauðárkrókur, Kaffi Krókur                

 

23. nóvember, kl. 13.00 – 17.00
Reykjavík, Grand Hótel - Hvammur

 

2. nóvember, kl. 13.00 – 17.00
Stykkishólmur, Hótel Stykkishólmur                                     

 

30. nóvember, kl. 13.00 – 17.00
Hella, Árhús, gistihús                                               

Á fundum taka til máls Friðrik Ág. Ólafsson, forstöðumaður Meistaradeildar SI, Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, Logi Már Einarsson, formaður Arkitektafélags Íslands, byggingarfulltrúi viðkomandi svæðis og Magnús Sædal fyrir hönd Félags byggingarfulltrúa. Að erindum loknum er boðið upp á fyrirspurnir og umræður.