Fréttasafn



  • Hringur

26. okt. 2012

Gullsmiðir bjóða heim

Laugardaginn 27. október nk. munu félagar í Félagi íslenskra gullsmiða (FÍG) halda hátíðlegan Gullsmiðadaginn.  

Þetta er í annað sinn sem Gullsmiðadagurinn er haldinn og er það gert í tengslum við afmæli félagsins, 19. október. 

Markmið Gullsmiðadagsins er vekja athygli á fagmennsku í greininni og fræða almenning um störf gullsmiða og mikilvægi þess að versla við faglærða.

Þetta árið ætla gullsmiðir að leggja áherslu á þrif og almennt viðhald á skartgripum og bjóða gestum og gangandi að koma með uppáhaldsskartgripinn sinn, fá létt þrif á honum og spjalla við fagmanninn. 

Í skartgripum liggja oft mikil verðmæti, tilfinningaleg jafnt sem efnisleg og það virðist stundum gleymast að þeir þarfnast þrifa og viðhalds.  

Gullsmíði er krefjandi og viðamikið nám þar sem tekið er á mörgum þáttum tengdum faginu. Að versla við faglærðan gullsmið er bæði gæðastimpill með vörunni og felur oftast í sér ábyrgð á henni sem ekki er hægt að ganga að vísri annarstaðar.

Þennan dag mun gullsmiðurinn þinn vera til taks í versluninni og svara þeim spurningum sem sem brenna á vörum gesta.