Fréttasafn



  • Prentun

28. nóv. 2012

63% af bókatitlum prentaðir á Íslandi

Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2012. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands dragast saman um rúmlega 5 prósentustig milli ára en árið 2011 var 68% hlutfall á prentun bókatitla innanlands.

Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 675 í Bókatíðindunum í ár en var 690 árið 2011.

Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum. Þar kemur fram að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis en það er m.a. vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka þar sem prentað er sameiginlega fyrir mörg lönd.

  • Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 171; 109 (64%) eru prentaðar á Íslandi og 62 (36%) prentaðar erlendis.
  • Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 193; 171 (89%) prentuð á Íslandi og 22 (11%) prentuð erlendis.
  • Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 101; 68 (67%) prentaðar á Íslandi og 33 (33%) prentaðar erlendis.
  • Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 210; 78 (37%) prentaðar á Íslandi og 132 (63%) prentaðar erlendis.

Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra í hverju landi og hlutfall af heild, jafnframt eru til samanburðar tölur fyrir árið 2011:

Árið 2011 Fjöldi titla %
Ísland 470 68,1
Evrópa 119 17,2
Asía 100 14,6
Annað 1 0,1
Samtals 690 100
 
Árið 2012 Fjöldi titla %
Ísland 426 63,1
Evrópa 134 19,9
Asía 115 17,0
Samtals 675 100