Fréttasafn



  • Klafi fær C vottun

21. jan. 2013

Klafi hlýtur C-vottun

Klafi ehf. hefur hlotið C-vottun SI sem staðfestir að reksturinn er í góðum höndum, studdur með öflugu verkbókhaldi, góðri skipulagningu og með mikla sérstöðu varðandi áherslur í öryggis- og heilbrigðismálum.

Klafi er stofnaður af Íslenska járnblendifélaginu og Norðuráli árið 2000 og vinna þrettán starfsmenn eru við almennan rekstur sem fer fram á hafnarsvæði Grundartangahafnar. Helstu verkefni Klafa eru, upp- og útskipanir fyrir Elkem Ísland og Norðurál, gámaflutningar á hafnarsvæði Grundartangahafnar og ýmis véla- og flutningavinna á Grundartangasvæðinu.