Fréttasafn



12. jún. 2013

Handpoint snjallgreiðslur komnar á íslenskan markað

Snjallgreiðslur Handpoint er einföld og ódýr greiðslulausn sem veitir einyrkjum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum möguleika á að taka á móti kortagreiðslum án þess að greiða mánaðargjöld, líkt og nú tíðkast með hefðbundnum posum. Lausnin samanstendur af ókeypis Handpoint appi, snjallsíma eða spjaldtölvu og Handpoint snjallposanum, sem er greiðslukortalesari.

„Snjallgreiðslur virka þannig að þegar vara eða þjónusta er seld slær söluaðili inn upphæðina á eigin snjallsíma og réttir viðskiptavininum snjallposann sem stingur korti í og slær inn pinnið. Posinn les kortið og flytur greiðsluna með öruggum hætti í greiðslumiðlunarkerfi Handpoint. Kvittun er síðan send í tölvupósti eða með smáskilaboðum til viðskiptavinar og einföldu greiðsluferli er lokið“, segir Davíð Guðjónsson, framkvæmdastjóri Handpoint.

Lítil, létt og ódýr lausn fyrir söluaðila á ferðinni  

Snjallgreiðslur eru lítið og létt tæki sem auðvelt er að hafa með sér á ferðinni og hentar því ákveðnum hópum vel eins og iðnaðarmönnum, ferðaþjónustuaðilum, farandsölumönnum og öðrum seljendum. „Með þessari lausn erum við að veita smærri söluaðilum aðgengi að greiðslulausn sem sniðin er að þeirra þörfum en einungis eru greidd gjöld þegar söluaðilinn hefur sjálfur tekjur af sölu síns varnings eða þjónustu. Ekki er um fastar mánaðargreiðslur að ræða sem þarf að greiða þótt engin viðskipti hafi átt sér stað, líkt og tíðkast með hefðbundna posa. Lausnin hentar því þeim vel sem eru í árstíðarbundnum og strjálum viðskiptum“, segir Davíð.

Handpoint hlaut nýverið alþjóðlega vottun fyrst allra kortafyrirtækja í heiminum

Snjallgreiðslur Handpoint fengu á dögunum alþjóðlega öryggisvottun (PCI-P2PE) frá Alþjóðlegu kortaöryggisstofunni, PCI, og er Handpoint fyrst fyrirtækja í heiminum til að fá  slíka lausn vottaða.