Fréttasafn



28. okt. 2013

Kerecis hlaut Hvatningarverðlaun LÍÚ

Fyrirtækið Kerecis hlaut Hvatningarverðlaun LÍÚ 2013. Verðlaunin voru afhent á aðalfundi sambandsins í síðustu viku. Kerecis er framsækið nýsköpunarfyrirtæki á Ísafirði sem hefur þróað einstakar heilbrigðisvörur úr þorskroði. Fyrirtækið vinnur verðmæti úr afurð sem talin var úrgangur og er frábært dæmi um þá vaxtarmöguleika sem íslenskur sjávarútvegur býr yfir og gróskuna sem einkennir líftækniiðnaðinn.

Kerecis er í farabroddi í heiminum í hagnýtingu á omega 3 olíu við framleiðslu á húðkremum og fékk nýverið staðfest einkaleyfi í Bandaríkjunum á aðferð sinni. Stærsta verkefni Kerecis er framleiðsla og markaðssetning á stoðefninu MariGen úr þorskroði, sem notað er til að græða  þrálát sár. Hröð útbreiðsla sykursýki í þróuðum samfélögum hefur gert skilvirka sárameðferð enn mikilvægari. Sem dæmi um þörf á vörum á borð við þær sem Kerecis framleiðir má nefna að á ári hverju þarf að aflima  um 100 þúsund Bandaríkjamenn vegna þrálátra sára og er stærstur hluti þess vegna sykursýki.

Með því að vinna stoðefni fyrir þrálát sár úr þorskroði, í stað þess að nota afurðir úr svínaþörmum eða húð látins fólks, hefur Kerecis opnað nýjar víddir. Kostnaður er minni, sýkingarhætta hverfandi og árangur betri. Stoðefnið MariGen er í notkun hérlendis, í Bretlandi og Mið-Austurlöndum og markaðsleyfi í Bandaríkjunum er á næsta leiti.

Kerecis vinnur einnig að þróun á stoðefnum úr þorskroði til uppbyggingar eftir kviðslit, vegna brjóstnáms og til viðgerða á heilabasti eftir áföll eða aðgerðir. Afurðir Kerecis eru þróaðar í samstarfi við lækna og fyrirtækið nýtur liðsinnis vísindalegrar ráðgjafarnefndar sem í sitja virtustu sérfræðingar heims í sárameðhöndlun.

Tæknin og framleiðslan

Kerecis fær roð af eldisþorski í Ísafjarðardjúpi frá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru og Klofningi. Við meðhöndlun Kerecis í verksmiðjunni á Ísafirði eru allar frumur og ofnæmisvaldar fjarlægðir úr roðinu. Þá stendur eftir roðbútur sem samanstendur af próteingrind og Omega 3 olíum. Roðbútarnir eru síðan skornir í búta, sem lagðir eru í vatn fyrir notkun. Efninu er því næst komið fyrir í sárinu sem síðan er lokað með venjulegum sáraumbúðum. Roðbúturinn virkar eins og svampur og heilbrigðar frumur líkamans leita skjóls í stoðgrindinni á meðan þær græða sárið. Úr hverju þorskroði  fást átta til tíu bútar af þessu tagi.

Stofnendur Kerecis eru Guðmundur Fertram Sigurjónsson, læknarnir Baldur Tumi Baldursson og Hilmar Kjartansson og Ernest Kenney, lögfræðingur í einkaleyfismálum. Guðmundur er jafnframt starfandi stjórnarformaður Kerecis. Rekstrar og þróunarstjóri Kerecis er Dóra Hlín Gísladóttir efnaverkfræðingur.