Fréttasafn



  • Árni Oddur Þórðarson

5. nóv. 2013

Árni Oddur Þórðarsson er nýr forstjóri Marel

Stjórn Marel hefur ráðið Árna Odd Þórðarson sem forstjóra Marel.  Samhliða urðu þær breytingar  á stjórn Marel að Ásthildur Margrét Otharsdóttir verður stjórnarformaður og Arnar Þór Másson verður varaformaður stjórnar.

 „Ég hlakka mikið til að vinna náið með því frábæra fólki sem Marel hefur á að skipa. Starfsmenn Marel hafa byggt upp alþjóðlegt þjónustunet í yfir 30 löndum og þeir kappkosta að viðhalda leiðtogastöðu sinni  á markaði með nýsköpun að leiðarljósi. Vaxtarsaga félagsins sýnir glöggt þann góða árangur sem náðst hefur og möguleikarnir á að skapa aukin verðmæti fyrir viðskiptavini okkar jafnt sem hluthafa eru miklir. Næstu skref eru að framkvæma stefnu Marel sem byggir á grundvallar styrkleikum félagsins“, segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel.

Theo Hoen, sem lætur af störfum forstjóra, hefur starfað hjá Marel og Stork Food Systems frá árinu 1986, þar af sem forstjóri frá því snemma árs 2009.

Marel hefur síðustu ár styrkt stöðu sína og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Theo Hoen hefur gegnt lykilhlutverki í sögu Marel og Stork Food Systems síðustu 28 árin. Fyrir hönd stjórnar Marel þakka ég Theo fyrir hans framlag til vaxtar og velgengni félagsins“, segir Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel.

Árni Oddur Þórðarsson hefur umfangsmikla alþjóðlega viðskiptareynslu. Hann hefur verið í stjórn Marel frá árinu 2005, lengst af sem stjórnarformaður. Árni Oddur er með MBA gráðu frá IMD viðskiptaháskólanu í Sviss og er með Cand. Oecon gráðu í viðskiptastjórnun frá Háskóla Íslands.