Fréttasafn



8. nóv. 2013

Helga Ósk Einarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2013

Helga Ósk Einarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2013 á sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember.

Árlega er efnt  til verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn meðal þátttakenda í sýningunni. Þeir sem valdir voru til þátttöku gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn.  Skilyrðin voru að hlutirnir  máttu hvorki  hafa  verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Um þrjátíu  tillögur bárust frá tuttugu aðilum.

Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. Fagleg  valnefnd sem Guðbjörg Gissurardóttir grafískur hönnuður og Eva Vilhelmsdóttir fatahönnuður skipuðu valdi verðlaunahafa.

Skúlaverðlaunin 2013 hlaut Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður og skartgripahönnuður fyrir verkið „Jafnvægi“. Helga Ósk sem er einn af okkar fremstu gullsmiðum er með mjög persónulegan og skemmtilegan stíl og vinnur einnig með gamla víraverkið á nýstárlegan hátt.

Auk verðlaunanna var veitt ein viðurkenning en hana hlaut Kristín Sigfríður Garðarsdóttir leirlistakona fyrir verkið „Doppur“.

Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Orri Hauksson framkvæmdastjóri SI sem afhenti verðlaunin.