Fréttasafn



4. feb. 2014

Málþing um lýsingarhönnun í þéttbýli

Vetrarhátíð Reykjavíkur verður sett þann 6. febrúar og stendur til 15. febrúar. SART og Ljóstæknifélagi Íslands standa fyrir málþingi um lýsingarhönnun í þéttbýli í Tjarnarbíói, föstudaginn 7. febrúar. Fundarstjóri verður hin landsþekkta leikkona Edda Björg Eyjólfsdóttir.

Vinsamlega smellið á Málþing til að skoða dagskrána.  

Aðgangur er ókeypis.

Ljóstæknifélagið stendur auki fyrir vörusýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur 7. og 8. febrúar og þar verður hægt að sjá það nýjasta í lýsingarlausnum frá S. Guðjónson, Philips, Rafkaup og Jóhanni Ólafssyni & Co.