Útboðsþing 2014 - verklegar framkvæmdir
Útboðsþing Samtaka iðnaðarins verður haldið á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 14. febrúar kl. 13.00 - 16.30.
Á þinginu verður gefið yfirlit yfir helstu útboð opinberra aðila á verklegum framkvæmdum.
Dagskrá
Setning
Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri SI
Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs
Framkvæmdasýsla ríkisins
Halldóra Vífilsdóttir, aðstoðarforstjóri
Faxaflóahafnir
Jón Þorvaldsson, aðstoðarhafnarstjóri
Landsvirkjun
Valur Knútsson, yfirverkefnisstjóri um byggingu Bjarnarflags- og Þeistareykjavirkjana
Landsnet, HS Orka og fleiri
Árni Jóhannsson, SI
Orkuveita Reykjavíkur
Hildigunnur H. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri þróunar
Vegagerðin
Rögnvaldur Gunnarsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
Fundarstjórar: Kristrún Heimisdóttir og Árni Jóhannsson
Þingið er haldið á vegum Samtaka iðnaðarins, Félags vinnuvélaeigenda og Mannvirkis – félags verktaka.