Fréttasafn



25. mar. 2014

Auglýst eftir tilnefningum til Kuðungsins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2013.

Óskað er eftir að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanðir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verða tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en sunnudaginn 30. mars merktar „Kuðungurinn“, á netfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Nánari upplýsingar á www.umhverfisraduneyti.is/kudungurinn