Nýsköpun er leiðin fram á við er yfirskrift Iðnþings 2020
Nýsköpun er leiðin fram á við er yfirskrift Iðnþings 2020 sem verður vegna samkomutakmarkana í beinni útsending á mbl.is og visir.is föstudaginn 18. september kl. 13.00-14.30. Landsmönnum öllum er boðið á Iðnþingið en samtökin vilja leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins nú þegar þörf er á viðspyrnu í efnahagslífinu. Á Iðnþingi 2020 verður kastljósinu beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.
Þátttakendur í dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
 - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
 - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
 - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
 - Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
 - Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris
 - Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech
 - Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV
 - Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI
 - Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis
 - Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech
 - Fida Abu Libdeh, annar tveggja stofnenda GeoSilica
 - Óskar Þórðarson, annar af stofnendum Omnom Chocolate Reykjavík
 - Kolbrún Hrafnkelsdóttir, stofnandi Florealis
 - Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
 - Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis
 - Björn Lárus Örvar, yfirmaður rannsókna og nýsköpunar ORF Líftækni
 - Guðrún Hafsteinsdóttir, ein af eigendum Kjöríss
 - Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri Advania Data Centers
 - Jónína Guðný Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og þjónustusviðs Terra
 - Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar
 - Logi Bergmann, fundarstjóri
 

Fjarðarfréttir, 16. september 2020.
Tígull, 15. september 2020.
Nútíminn, 15. september 2020.

