Fréttasafn



12. apr. 2017 Almennar fréttir Nýsköpun

Opnað fyrir tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann sem er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til þriðjudagsins 2. maí. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Þau fyrirtæki sem komast í gegnum forvalið þurfa síðan að skila staðfestingu endurskoðanda um þau atriði sem fram koma í viðmiðum dómnefndar fyrir hádegi 8. maí. Hægt er að tilnefna fyrirtæki með tölvupósti á david@si.is.

Skipulag og dómnefnd

Þriggja manna dómnefnd sér um skipulag, kynningu og val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Í forvali þarf að senda inn eftirfarandi lykiltölur úr rekstri:

  • Veltutölur síðustu tveggja ára
  • Heildartölur fyrir rannsókna- og þróunarkostnað síðustu tveggja ára

Ef fyrirtækið kemur til greina sem Vaxtarsproti ársins eftir forval þarf að senda inn staðfestingu löggilts endurskoðanda á að innsendar lykiltölur séu réttar og að fyrirtækið uppfylli öll skilyrði í viðmiðum sem dómnefnd leggur til grundvallar vali á Vaxtarsprota ársins.

Viðmið dómnefndar

  • Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sem er mældur með eftirfarandi hætti: (V1-V2)/V2, þar sem V1 er söluvelta síðasta árs og V2 er söluvelta ársins á undan.
  • Fyrirtækið þarf að uppfylla skilgreiningu sprotafyrirtækja - þ.e. að verja meira en 10% af veltu í rannsókna- og þróunarkostnað að meðaltali fyrir bæði árin sem tekin eru til viðmiðunar og söluvelta fyrra árs (V2) sé yfir 10 milljónum og undir einum milljarði króna.
  • Frumkvöðull þarf að vera til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu stórfyrirtækis (þ.e. fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi), fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar.

Viðurkenningar

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun. Þá fær fyrirtækið einnig sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónum króna og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 milljónir króna.

Samtök iðnaðarins veita einnig sérstaka viðurkenningu til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. 

Meniga hlaut þessa viðurkenningu á árinu 2015 og Vaki fiskeldiskerfi náði þessum áfanga á árinu 2016 hafa því verið innrituð í úrvaldsdeild íslenskra hátæknifyrirtækja. Áður hafa Nox Medical, CCP, Betware, Nimblegen og NaustMarine hlotið þessa viðurkenningu.

Eimverk ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2016.
Nánar um afhendinu Vaxtasprotans 2016 má finna hér.

Vaxtarsprotinn var fyrst afhentur í mars 2007. Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið viðurkenningu: 

Vaxtarsprotann 2007 hlaut Marorka
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Gagarín, Stiki og Stjörnu-Oddi

Vaxtarsprotann 2008 hlaut Mentor
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Betware, Valka og Kine

Vaxtarsprotann 2009 hlaut Mentor
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Naust Marine, Gogogic og Saga Medica

Vaxtarsprotann hlaut 2010 Nox Medical
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Valka, Hafmynd og Menn og Mýs

Vaxtarsprotann 2011 hlaut Handpoint
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu:Marorka, Trackwell og Gogogic

Vaxtarsprotann 2012 hlaut Valka
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Kvikna, ORF Líftækni og Thorice

Vaxtarsprotann 2013 hlaut Meniga
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Controlant, Nox Medical og Lceconsult

Vaxtarsprotann 2014 hlaut DataMarket
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Valka, Nox Medical og Skema

Vaxtarsprotann 2015 hlaut Kvikna
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlaut: Valka

Vaxtarsprotann 2016 hlaut Eimverk
Viðurkenningu fyrir góðan vöxt hlutu: Lauf Forks, ORF-Líftækni og Valka