Fréttasafn



13. des. 2019 Almennar fréttir Menntun

Óskað eftir tilnefningum fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins

Frestur til að skila inn tilnefningum fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020 rennur út mánudaginn 23. desember. Eftir þann tíma verður ekki tekið við tilnefningum eða gögnum. Um er að ræða tvær viðurkenningar, annars vegar er valið menntafyrirtæki ársins og hins vegar er valinn menntasproti ársins. Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 5. febrúar á næsta ári. 

Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar sendist í tölvupósti á verdlaun@sa.is. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf en skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Skila á greinargerð að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru: 

• að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins 

• að sem flest starfsfólk taki virkan þátt 

• að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum 

• að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar


Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru: 

• að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja, 

• samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja