Fréttasafn



6. ágú. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun Samtök sprotafyrirtækja

Óskað eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2020

Óskað er eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2020. Hægt er að senda inn tilnefningar fram til föstudagsins 14. ágúst næstkomandi. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs og ársins á undan. Skilyrði er að frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar. Hægt er að senda inn tilnefningar með tölvupósti á netfangið sigridur@si.is.

Viðurkenningar

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun og sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 millj. kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 millj. kr.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).

Velta meira en 1 milljarði í fyrsta sinn

Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki og er hægt að senda inn ábendingar með tölvupósti á netfangið sigridur@si.is.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Vaxtarsprotinn-2019-2-_1596708769916Frá afhendingu Vaxtarsprotans á síðasta ári þegar fyrirtækið Carbon Recycling International hlaut Vaxtarsprotann 2019 og Taktikal og Kerecis hlutu viðurkenningar fyrir vöxt í veltu.