Fréttasafn



  • Rannis-nýtt

8. jan. 2015 Nýsköpun

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki í vinnustaðanámssjóð

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr vinnustaðanámssjóði

Umsóknarfrestur rennur út 2. febrúar, kl. 16:00.

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknargögnog nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Rannís