Fréttasafn



  • Rannis-nýtt

24. ágú. 2015 Menntun

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr vinnustaða­námssjóði

 

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr vinnustaðanámssjóði

Umsóknarfrestur rennur út 31. ágúst, kl. 17:00.

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknargögn er að finna á

www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/

Umsóknum skal skila á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Hrafnkelsdóttir,
hulda.hrafnkelsdottir@rannis.is ,
sími 515 5800.