Fréttasafn



26. ágú. 2019 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Skráning hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins

Skráning er hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins sem verður haldinn miðvikudaginn 9. október næstkomandi í Hörpu. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu. Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri Samtaka iðnaðarins í menntamálum.

Dagskrá

  • Setning - Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
  • Umhverfismál og auðlindanýting á Norðurslóðum - Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins.
  • Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir - Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
  • Loftslagsbreytingar og fjárfestingar - Brynjólfur Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Íslandssjóðum.
  • Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 - Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin.
  • Kaffihlé kl. 10-10.15
  • Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir - Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins.
  • Jákvæðar fyrirmyndir - Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, og Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla.
  • Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið - Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ.
  • Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum - Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku.
  • Aðlögun að loftslagsbreytingum - Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf.
  • 12.00 Súpa, spjall og netagerð

Hér er hægt að skrá sig.