Fréttasafn



12. des. 2017 Almennar fréttir

Þrír nýir starfsmenn ráðnir til Samtaka iðnaðarins

Guðrún Birna Jörgensen ráðin viðskiptastjóri á framleiðslusviði SI

Gudrun-Birna_SIGuðrún Birna Jörgensen hefur verið ráðin viðskiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka iðnaðarins og hóf hún störf í byrjun desember.

Guðrún Birna hefur frá árinu 2011 starfað hjá Íslandsstofu sem verkefnastjóri fyrir Inspired by Iceland. Fyrir þann tíma starfaði hún sem markaðsstjóri hjá Microsoft Ísland og markaðs- og vörumerkjastjóri hjá Heklu.

Guðrún Birna er með BS gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands og er nú í meistaranámi í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst.

 

Vilhjálmur Hilmarsson ráðinn sérfræðingur í greiningum hjá SI

Vilhjalmur_SI

Vilhjálmur Hilmarsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í greiningum hjá Samtökum iðnaðarins. Hann hefur störf í janúar.

Vilhjálmur hefur frá árinu 2013 starfað sem hagfræðingur á sviði samgangna hjá Mannviti. Áður starfaði hann hjá Vegagerðinni við innleiðingu arðsemislíkans og við arðsemismat á samgöngumannvirkjum auk þess að gegna tímabundnu starfi í innanríkisráðuneytinu við greiningu á framtíð innanlandsflugs. Vilhjálmur kom að gerð skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi sem gefin var út fyrir skömmu.

Vilhjálmur er með MS gráðu í hagfræði frá Copenhagen Business School og Háskóla Íslands og er í meistaranámi í fjármálum við Háskóla Íslands. Hann er með BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

 

Signý Jóna Hreinsdóttir ráðin viðskiptastjóri á hugverkasviði SI

Signy-Jona_SI

Signý Jóna Hreinsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri á hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. Hún hefur störf í byrjun janúar.

Signý Jóna hefur starfað frá árinu 2016 hjá Valitor sem sérfræðingur við innleiðingu á Lean straumlínustjórnun. Áður var hún verkefnastjóri hjá Mílu og Símanum. Um tíma bjó Signý Jóna í Osló og starfaði þar meðal annars í mannauðsmálum fyrir BW Offshore í Osló og hjá Synaptic Technologies AS.

Signý Jóna er með MS gráðu í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum frá BI Norwegian Business School í Osló og BS gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

 

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir ánægjulegt fyrir Samtök iðnaðarins að fá þrjá öfluga liðsmenn til starfa:  „Samtök iðnaðarins hafa að undanförnu verið að styrkja starfsemina með nýjum liðsmönnum í hóp kraftmikilla starfsmanna SI. Við höfum lagt kapp á að efla þjónustuna við aðildarfyrirtæki samtakanna á síðustu mánuðum og er markmið okkar að gera enn betur á því sviði á nýju ári. Að sama skapi vilja Samtök iðnaðarins vinna að umbótum og marka spor í umræðu á Íslandi um málefni iðnaðar, ekki síst þau mál sem snerta samkeppnishæfni Íslands. Þau mál eru helst menntun, nýsköpun, innviðir og starfsumhverfi fyrirtækja. Bætt samkeppnishæfni gagnast ekki eingöngu atvinnulífinu heldur samfélaginu í heild sinni. Það er fengur fyrir samtökin að fá Guðrúnu Birnu, Vilhjálm og Signý Jónu til starfa.“