Fréttasafn



8. feb. 2019 Almennar fréttir Nýsköpun

Viljum sjá meira gerast í nýsköpunarmálum

Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hugverkasviðs SI, um nýsköpunarstefnu Samtaka iðnaðarins sem kynnt var á opnum fundi í Iðnó í gær. „Við erum að leggja til ýmsar aðgerðir á þessu sviði og viljum sjá meira gerast í þessum málaflokki á kjörtímabilinu því við erum að dragast aftur úr í samanburði við önnur ríki.“ 

Í fréttinni segir að í stefnunni sé staðan eins og hún er í dag dregin fram sem og framtíðarsýn fyrir árið 2050. Bent sé á að nú séu margvíslegir veikleikar í umhverfi nýsköpunar á Íslandi og til að bæta umgjörð og hvata til nýsköpunar á Íslandi séu lagðar til aðgerðir í fjórum meginþáttum. Í fyrsta lagi sé lagt til að fjárfesting í rannsóknum og þróun verði aukin meðal annars með afnámi á þaki á endurgreiðslur og skattaívilnunum. Í öðru lagi sé lagt til að framboð af sérfræðingum verði aukið með því að horfa til uppbyggingar menntakerfisins og efla umgjörð til að taka á móti sérfræðingum. Þá sé lagt til að stuðningsumhverfið verði einfaldað og eflt og hægt sé að ná fram meiri skilvirkni og hagræðingu með því að sameina málaflokkinn undir einni stofnun. Að lokum sé bent á mikilvægi þess að efla kynningar- og markaðsstarf þannig að Íslandi verði kynnt sem ákjósanlegur staður fyrir fólk og fyrirtæki í nýsköpun.

Sigríður segir í fréttinni að verði ekki gripið til aðgerða sem allra fyrst muni það koma niður á lífskjörum í framtíðinni. „Þá munum við ekki ná að byggja upp þá verðmætasköpun sem við þurfum. Það er grundvallaratriðið í þessu því hugvitið og nýsköpunin er eina leiðin fram á við.“

Fréttablaðið / Frettabladid.is / Vísir8. febrúar 2019.