Fréttasafn



Fréttasafn: 2010 (Síða 11)

Fyrirsagnalisti

11. feb. 2010 : Málstofa um japanska nýsköpun - Japan Innovation Forum 2010

Japanskan í Háskóla Íslands ásamt japanska sendiráðinu og SI stendur fyrir málstofu um japanska nýsköpun 12. febrúar kl. 12.00 - 13.30. Fundurinn fer fram í aðalbyggingu háskólans í hátíðarsal. Fundurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis.

10. feb. 2010 : Vel sótt málþing um menntun og vöxt á Menntadegi iðnaðarins

Á Menntadegi iðnaðarins sem haldið var á Grand Hóteli Reykjavík í morgun var fjallað um menntun og vöxt. Málþingið var vel sótt, en tæplega 100 manns hlustuðu áhugasamir á fyrirlestra um tækifæri og möguleika í menntakerfinu.

10. feb. 2010 : Góðar fréttir - útboð vegna Búðarhálsvirkjunar

„Vonandi er þetta til marks um að nú takist að rjúfa þá kyrrstöðu sem verið hefur í framkvæmdum á sviði orkuöflunar og orkunýtingar. Þessar fréttir eru ekki síður gleðilegar vegna þess að þær munu auka mönnum bjartsýni og kjark. Það hefur því miður ekki verið mikið um slíkar fréttir undanfarið,” segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI.”

9. feb. 2010 : Alcoa Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 74 milljarða árið 2009

Útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem jafngildir um 74 milljörðum íslenskra króna, miðað við núverandi gengi. Flutt voru út rúmlega 349 þúsund tonn af hreinu áli, álblöndum og álvírum. Verðmæti útflutnings Alcoa Fjarðaáls í fyrra nam því rúmlega 1.4 milljörðum króna á viku, eða rúmlega 200 milljónum króna á dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

9. feb. 2010 : Áhugi á Evrópuumræðunni vex

Greinilegt er að margir eru að undirbúa sig undir umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Til marks um það er stofnun félaga og samtaka sem hafa að markmiði að ræða málin og eftir atvikum að leggjast á sveif með eða gegn aðild.

9. feb. 2010 : Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag

Ráðstefnan Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag sem haldin var í lok janúar var prýðilega heppnuð og vel sótt. En þar fjölluðu fulltrúar grasrótarhópa, hagsmunaaðila og samtaka um sóknarfæri og áherslur sem aukið geta lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum.

5. feb. 2010 : Kynning á nýrri matvælalöggjöf

Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um nýja matvælalöggjöf í samstarfi við Matvælastofnun og önnur samtök í atvinnulífi þann 9. 16 og 22. febrúar.

4. feb. 2010 : Ógn úr austri?

Kínversk byggingafyrirtæki eru oftar en ekki í opinberri eigu. Til að auðvelda þeim leiðina inn á evrópska verktakmarkaðinn njóta þau hagstæðra lána frá kínverska ríkinu. Danska verktakasambandinu stendur ekki á sama um þessa ógn úr austri og vill að gripið sé til aðgerða.

29. jan. 2010 : Samtök atvinnurekenda þétta raðirnar

Að sameiginlegu frumkvæði Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands var haldinn fundur í vikunni um það vandamál sem blasa við atvinnulífinu. Fundinn sóttu formenn, varaformenn og framkvæmdastjórar tólf samtaka atvinnurekenda. Fundurinn sýnir glöggt að atvinnurekendur telja brýnt að þétta raðirnar til þess að takast á við verkefnin framundan.

28. jan. 2010 : Útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar

Vegagerðin vinnur nú að því að undirbúa útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Ríkisstjórnin hefur heimilað útboðin og framkvæmdir munu dreifast á tvö ár þ.e.a.s. árin 2010 og 2011. SI fagna þessari ákvörðun mjög en það hefur verið verið eitt af helstu baráttumálum þeirra undanfarin misseri að fá opinbera aðila til arðbærrar mannvirkjagerðar.

28. jan. 2010 : Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat

SI fagna staðfestingu umhverfisráðuneytis á ákvörðun Skiplagsstofnunar frá 30. október um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. Ráðuneytinu bárust kærur frá Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Græna netinu vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar.

26. jan. 2010 : FKA viðurkenninguna 2010 hlaut Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors

Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri Mentor hlaut FKA viðurkenninguna 2010 sem veitt var við hátíðlega athöfn 21. janúar sl. Þetta er í 11. sinn sem Félag kvenna í atvinnurekstri veitir þessa viðurkenningu.

26. jan. 2010 : Verðbólguþróun til marks um samdrátt

„Vissulega er það ánægjulegt að verðbólgan skuli vera hjaðna en verðbólguþróunin leiðir hugann hins vegar af orsökum minnkandi verðbólgu og  þeirrar staðreyndar að vextir eru hér enn mjög háir“, segir Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands lækkaði vísitala neysluverðs um 0,31% í janúar frá fyrra mánuði en án húsnæði breyttist vísitalan ekki. Verðbólgan mælist nú 6,6% en síðustu þrjá mánuði er verðbólga á ársgrunni 3,7%.

22. jan. 2010 : Nýr framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands

Framtakssjóður Íslands var nýlega stofnaður af fjölmörgum lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóðirnir leggja sjóðnum til 30 milljarða kr. og mun sjóðurinn gegna veigamiklu hlutverki í endurreisn íslensks efnahagslífs með fjárfestingum í fyrirtækjum. Stjórn sjóðsins hefur ráðið Finnboga Jónsson sem framkvæmdastjóra.

22. jan. 2010 : Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag

Nýskopunarmiðstöð Íslands stendur fyrir ráðstefnunni Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag á Radisson SAS Saga hótel 28. janúar kl. 13:00 - 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

22. jan. 2010 : The Best of TechEd & Convergence 2010

Microsoft Íslandi stendur fyrir risaráðstefnunni The Best of TechEd & Convergence 2010 á Hilton Nordica Hótel 26.-27. Janúar. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

21. jan. 2010 : Nýr grunnur fyrir vísitölu byggingakostnaðar

Hagstofan hefur í fyrsta sinn birt byggingavísitölu samkvæmt nýjum grunni. Í síðasta tölublaði Íslensks iðnaðar var talað við Heiðrúnu Guðmundsdóttur og Stefán Loga Sigurþórsson sérfræðinga í vísitöludeild Hagstofunnar og fjallað um þessar breytingar.

20. jan. 2010 : Láta þarf verkin tala

Það er ekki nóg að stjórnmálamenn tali um að framkvæmdir muni hefjast á næstunni. Fyrirtæki lifi ekki á talinu einu. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í viðtali við fréttastofu Rúv.

20. jan. 2010 : Hagnýting rafrænna reikninga

Þann 4. febrúar verður haldið námskeið á vegum Staðlaráðs Íslands fyrir stjórnendur sem vilja nýta hagræði af rafrænum reikningum.

19. jan. 2010 : Styrkir til nýsköpunar og rannsókna á loftslagi, umhverfi og orku

Áskoranir sem blasa við í loftslagsmálum krefjast nýrrar þekkingar og tæknilausna. Norðurlöndin hafa margt fram að færa á þessu sviði og löndin hafa nú þegar mikla reynslu af notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Haustið 2008 var ákveðið að fara af stað með stærstu samnorrænu rannsóknaráætlun til þessa, Öndvegisrannsóknaráætlun (Topforskningsinitiativet).
Síða 11 af 12