Fréttasafn: 2014 (Síða 3)
Fyrirsagnalisti
Stendur þú skil á þínu?
Samtök iðnaðarins hafa aftur hleypt af stokkunum auglýsingaherferð með slagorðinu Stendur þú skil á þínu? Tilgangurinn er að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi og vekja fólk til umhugsunar um að skattsvik af þessu tagi kosta samfélagið tugi milljarða árlega.
Matvæladagurinn 2014
Matvæladagur Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands (MNÍ) 2014 verður haldinn á Hótel Sögu föstudaginn 17. október frá kl. 13-17. Dagurinn verður að þessu sinni helgaður umfjöllun um upplýsingamiðlun tengda matvælum, frá framleiðslu til neytanda út frá mismunandi sjónarhornum.
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr vinnustaðanámssjóði
Fjölmenni á fundi um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa
Um 200 manns sóttu kynningarfund um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði á Grand Hótel Reykjavík í gær. Fundurinn var liður í fundaröð sem Mannvirkjastofnun og Samtök iðnaðarins hafa staðið að um land allt til að kynna kröfu um gæðastjórnunarkerfi
Fæðubótarefni unnið úr jarðhitakísli
Fyrirtækið Geosilica hefur þróað nýtt fæðubótarefni sem fyrirbyggir beinþynningu. Efnið sem kemur á markað í nóvember inniheldur náttúrulegan jarðhitakísil sem unninn er úr affallsvatni Hellisheiðarvirkjunar.
Samstarf er lykill að árangri
Skráning er hafin á STEFNUmót íslensks byggingariðnaðar sem fram fer 4. nóvember nk. á Grand Hótel.
Krafa um gæðastjórnunarkerfi í byggingariðnaði tekur gildi 1. janúar 2015
Allir sem skrá sig á byggingarleyfisskyld verk sem hönnuðir, hönnunarstjórar, iðnmeistarar eða byggingarstjórar eftir 1. janúar 2015 skulu vera með gæðastjórnunarkerfi sem samþykkt er af Mannvirkjastofnun. Kynningarfundir um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði verða haldnir í september og október.
Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga vill betri upprunamerkingar matvæla
Það skiptir meira en fjóra af hverjum fimm Íslendingum máli að upplýsingar um upprunaland séu á umbúðum matvæla við ákvörðun um kaup. Þar af telur tæpur helmingur (48%) að það skipti miklu máli og rúmur þriðjungur (35%) að það skipti nokkru máli. Aðeins 17% telja að það skipti litlu eða engu máli.
SA og SI mótmæla auknu eftirliti
Leiðrétting vegna greinar í Morgunblaðinu 13. september
Ályktun stjórnar Samtaka sprotafyrirtækja
Stjórn Samtaka sprotafyrirtækja fagnar áformum um eflingu Tækniþróunarsjóðs og áframhaldandi uppbyggingu endurgreiðslna rannsókna- og þróunarkostnaði skv. lögum nr. 152/2009 í fjárlagafrumvarpi 2015. Jafnframt fagna samtökin þeirri stefnu sem birtist í aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs í samráði við stjórnvöld.
Forritum framtíðina - CodeWeek 2014
Breytingar á neyslusköttum - mikilvægt skref í rétta átt
Blikksmiðurinn með D - vottun
Blikksmiðurinn hf. hefur staðist úttekt á fyrsta þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið D-vottun.D-vottun er fyrsti hluti gæðavottunarkerfis SI sem tekið er upp í fjórum áföngum.
Einingaverð eiga að vera trúnaðarmál
Gámaþjónustan hf. sem er aðili að Samtökum iðnaðarins hefur ásamt sveitarfélaginu Ölfusi ákveðið að höfða mál til ógildingar á úrskurði nr. A 541/2014 sem Úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað upp nýlega. Málið varðar aðgang að öllum tilboðsgögnum Gámaþjónustunnar hf. í opnu útboði á sorphirðuþjónustu fyrir sveitarfélagið Ölfus.
Viðurkenning fyrir snyrtilega lóð
Fyrirtækið Þykkvabæjar hlaut viðurkenningu Garðabæjar fyrir snyrtilegustu lóð fyrirtækis eða stofnunar þann 23. júlí. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar afhentu viðurkenninguna við hátíðlega athöfn á Garðatorgi.
Íslenska kalkþörungafélagið færir Bíldudalsskóla spjaldtölvur
Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal afhenti í morgun Bíldudalsskóla níu iPad spjaldtölvur að gjöf. Fjöldi tölvanna samsvarar fjölda núverandi starfsmanna hjá Kalkþörungafélaginu sem luku á sínum tíma námi frá skólanum á Bíldudal.
Almar Guðmundsson nýr framkvæmdastjóri SI
Almar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Samtök iðnaðarins styðja afnám vörugjalda
Samtök iðnaðarins fagna hugmyndum fjármálaráðherra um að einfalda skattkerfið og fella niður vörugjöld. Samtökin hafa margítrekað bent á að innheimtukerfi vörugjalda af matvælum (sykurskattsins svonefnda) er geysilega flókið og kostnaðarsamt bæði fyrir framleiðendur og hið opinbera.
Framkvæmdastjóri lætur af störfum
Kristrún Heimisdóttir lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samkvæmt samkomulagi við stjórn Samtakanna.
„Ég vil fyrir hönd stjórnar Samtaka iðnaðarins þakka Kristrúnu fyrir góð störf hennar í þágu SI og óska henni góðs gengis í framtíðinni,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.