Fréttasafn



Fréttasafn: 2014 (Síða 4)

Fyrirsagnalisti

18. ágú. 2014 : Aukum framleiðni - býrðu yfir góðri hugmynd?

Frestur til að senda inn hugmyndir er til 31. ágúst næstkomandi og sendist á framleidni@si.is

18. ágú. 2014 : Framleiðslulandið Ísland færist efst á dagskrá - Rætt við Kristúnu Heimisdóttur, framkv.stj. SI

„Við héldum fjölsóttasta Iðnþing frá upphafi í mars sl. undir yfirskriftinni Drifkraftur nýrrar sóknar. Ég hef orðið vör við hve mörgum eru minnisstæðar styttri ræðurnar sem fluttar voru á þinginu þar sem forystufólk Sets, Kaffitárs, Kerecis og Jáverks sögðu söguna af því hvernig þeim auðnaðist að stýra fyrirtækinu farsællega gegnum hrunið.

18. ágú. 2014 : Vinnustaðanámssjóður - umsóknarfrestur til 29. ágúst

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári.
Næsti umsóknarfrestur er til 29. ágúst vegna vinnustaðanáms.

Nánari upplýsingar hér.

14. ágú. 2014 : Neytendastofa sektar Drífu ehf.

Með ákvörðun sinni, dags. 29. júlí sl. lagði Neytendastofa einna milljón króna stjórnvaldssekt á Drífu, þar sem fyrirtækið virti að vettugi ákvörðun stofnunarinnar frá ágúst 2013.

13. ágú. 2014 : Kallað eftir tilnefningum til Fjöreggs MNÍ 2014 

Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands kallar eftir tilnefningum til FJÖREGGS MNÍ 2014. Fjöreggið er íslenskt glerlistaverk, hannað og framleitt hjá Gleri í Bergvík og er veitt árlega á Matvæladegi fyrir lofsvert framtak á matvæla og/eða næringarsviði. 

1. júl. 2014 : Gagarín hlýtur silfurverðlaun European Design Awards

Gagarín hlaut nýverið silfurverðlaun í flokki stafrænnar hönnunar í samkeppni á vegum European Design Awards fyrir villihreindýrasafnið á Harðangursöræfum í Noregi. Verðlaunin eru afhent árlega þeim sem þykja skara fram úr í Evrópu á sviði grafískrar hönnunar, myndskreytinga og stafrænnar hönnunar.

13. jún. 2014 : Ólöglegar merkingar

Hinn 14. ágúst 2013 komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið Drífa ehf., sem selur smávörur í verslunum hér á landi undir merkjunum Icewear og Norwear, hafi brotið gegn ákvæðum laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

11. jún. 2014 : Iðnaður á Austurlandi – drifkraftur nýrrar sóknar

Stjórn Samtaka iðnaðarins gerði sér ferð á Austurland í liðinni viku, heimsótti fyrirtæki á svæðinu og ræddi við starfsfólk og stjórnendur um horfur í atvinnumálum. Mikill kraftur og bjartsýni einkennir viðmælendur að mati stjórnar.  Á síðustu tíu árum hafa orðið stórkostlegar breytingar á atvinnulífinu á svæðinu en þær byggjast á iðnaði og tæknivæðingu

11. jún. 2014 : Þróun á endurvinnslumarkaði

Á undanförnum áratugum hefur þróun í úrgangsmálum verið hröð. Fyrst var aukin áhersla á endurvinnslu, orkuvinnslu og jarðgerð. Í upphafi aldarinnar var mikið rætt um flokkun á úrgangi, hvort venjulegt fólk gæti og vildi flokka úrgang og hvernig þetta yrði gert á sem hagkvæmastan hátt í fámennu landi með dreifða byggð. En þróunin heldur áfram.

10. jún. 2014 : Málstofa um orkustjórnun

Á Nýsköpunartorgi þann 23. maí sl. var haldin málstofa um orkustjórnun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum á vegum Staðlaráðs, SI og CleanTech Iceland. Orkureikningurinn getur vegið þungt í heildarrekstri fyrirtækja; rafmagn, hiti og eldsneyti á vélar og farartæki. Staðlaráð hefur gefið út bækling og leiðbeiningar um innleiðingu á orkustjórnun í takt við staðalinn ÍST EN ISO 50001:2011.

6. jún. 2014 : Ályktun frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda sem haldinn var í vikunni. Á aðalfundinum var rætt um mikilvægi þess að framlög í Kvikmyndasjóð verði aukin og ályktun þar að lútandi samþykkt einróma.

3. jún. 2014 : Alefli hlýtur C-vottun

Alefli ehf. hefur hlotið C-vottun SI sem staðfestir að reksturinn er í góðum höndum, studdur með öflugu verkbókhaldi, góðri skipulagningu og með mikla sérstöðu varðandi áherslur í öryggis- og heilbrigðismálum.

28. maí 2014 : Helgi Már Halldórsson nýr formaður SAMARK

Aðalfundur Samtaka arkitektastofa, SAMARK, var haldinn í gær. Á fundinum var Helgi Már Halldórsson kjörinn nýr formaður samtakanna en hann tekur við af Ögmundi Skarphéðinssyni. Aðrir í stjórn voru kosnir Ásdís Helga Ágústsdóttir og Þráinn Hauksson.

28. maí 2014 : Mikið um að vera á Nýsköpunartorgi

Vel tókst til á Nýsköpunartorgi sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík dagana 23. og 24 maí. Um var að ræða fagráðstefnu um starfsumhverfi og uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja og sýningu þar sem fyrirtæki og stofnanir kynntu árangur í nýsköpun.

28. maí 2014 : Rio Tinto Alcan hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála

Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála sem veitt voru í fyrsta sinn í dag á ráðstefnunni "Aukið jafnrétti - aukin hagsæld".Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, UN Women á Íslandi, Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Samtök atvinnulífsins.

26. maí 2014 : Datamarket hlýtur VAXTARSPROTANN 2014

Fyrirtækið Datamarket ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2014 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári. Fyrirtækið jók sölutekjur sínar milli áranna 2012 og 2013 um 134%. Fyrirtækin Valka, Nox Medical og Skema fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt.

26. maí 2014 : Þaramajónesið Fjaran sigrar í EcoTrophelia Ísland

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra veitti verðlaun í keppninni EcoTrophelia Ísland sl .föstudag á Nýsköpunartorgi í í Háskólanum í Reykjavík. EcoTrophelia Ísland er hluti af alþjóðlegri keppni og er vöruþróunarkeppni meðal háskólanemenda sem felst í því að þróa vistvæna matvöru.

21. maí 2014 : Aðalfundur Félags ráðgjafarverkfræðinga

Aðalfundur Félags Ráðgjafarverkfræðingavar haldinn 15. maí. Áður en eiginleg aðalfundarstörf hófust flutti Þórður Hilmarsson, forstöðumaður fjárfestingasviðs Íslandsstofu, áhugavert erindi þar sem fjallað var um vinnu við að laða að erlenda fjárfestingu til Íslands.

21. maí 2014 : Viljayfirlýsing um stofnun rannsóknarseturs í áli og efnisvísindum

Undirbúningur er hafinn að stofnun og rekstri rannsóknarseturs í áli og efnisvísindum. Viljayfirlýsing um það var undirrituð í morgun af Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Þorsteini Inga Sigfússyni forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Guðrúnu Sævarsdóttur forseta tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, Ólafi Pétri Pálssyni deildarforseta iðnaðar, vélaverkfræði og tölvunarfræði Háskóla Íslands og Rannveigu Rist stjórnarformanni Samáls, samtakaálframleiðenda.

21. maí 2014 : True North hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, veitti kvikmyndafyrirtækinu Truenorth Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2014 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Það voru Helga Margrét Reykdal, framkvæmdastjóri og Leifur B. Dagfinnsson, stjórnarformaður Truenorth, sem veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. 

Síða 4 af 8