Fréttasafn



15. jan. 2020 Almennar fréttir Efnahagsmál Starfsumhverfi

Hver verður efnahagsleg arfleifð ríkisstjórnarinnar?

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, spyr nú þegar styttist í næstu Alþingiskosningar hver efnahagsleg arfleifð núverandi ríkisstjórnar verður þegar hagvöxtur er enginn og atvinnuleysið komið yfir 4% í grein sinni í Markaðnum í dag. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum í lok nóvember 2017 var hagvöxtur hér á landi 4,4% og atvinnuleysi rétt ríflega 2%. Spár um hagvöxt fyrir þetta ár hafa verið á hraðri niðurleið undanfarið. Í nýjustu spá Arion banka er því spáð að hagvöxturinn verði ekki nema 0,6% og að atvinnuleysið haldi áfram að aukast.

Í greininni kemur fram að það sé ekki of seint að grípa til aðgerða til að bæta stöðuna þar sem hagspár séu ávallt ákveðin sviðsmynd sem byggi á forsendum um þá þætti sem ákveða hagvöxt framtíðarinnar. Þegar spárnar eru svartar sé það m.a. á valdi stjórnvalda að grípa til aðgerða og breyta þannig framtíð landsmanna til betri vegar. Spár um hægan hagvöxt á árinu og vaxandi atvinnuleysi sé þannig ekki orðinn hlutur heldur eitthvað sem stjórnvöld geta mótað.

Framtíðin markast af ákvörðunum sem teknar eru í dag

Þá segir Ingólfur að ef skyggnst er bak við tölurnar þá markist framtíðin, sem hér er verið að spá fyrir um, af þeim ákvörðunum sem teknar eru í dag. Hvernig við tökumst á við áskoranir eða viðfangsefni sem skera úr um hvernig samkeppnisstaða okkar fyrirtækja mun þróast ráði miklu um hvort þau geti skapað aukin verðmæti og störf til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag í framtíðinni.

Hann segir að Samtök iðnaðarins hafi lagt áherslu á þá þætti sem líklegastir eru til að efla samkeppnishæfni Íslands um þessar mundir og undirbyggja þar með bætt lífskjör landsmanna litið til framtíðar: 

  • Menntakerfið leiði saman færni mannauðsins og þarfir atvinnulífsins á skilvirkan og hagkvæman hátt.
  • Innviðir séu í góðu ástandi og uppfylli þarfir atvinnulífs og almennings.
  • Umgjörð og hvatar til nýsköpunar séu með því besta sem þekkist í heiminum.
  • Starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja sé stöðugt, hagkvæmt og skilvirkt.
  • Íslenskur iðnaður sé í fararbroddi í sjálfbærni og umhverfismálum og styðji við markmið þjóðarinnar um kolefnishlutleysi.
  • Íslenskar vörur og fyrirtæki hafi jákvæða ímynd í samanburði við erlenda valkosti.

Í niðurlagi greinar sinnar segir Ingólfur að hagvaxtahorfur séu ekki góðar og það sé ekki nóg að ganga í takt í hagstjórninni. Takturinn verði að vera af áræðni og nægjanlega hraður til að mýkja efnahagssamdráttinn og skapa grundvöll fyrir nýju hagvaxtartímabili. Huga þurfi að öllum þeim þáttum sem efli samkeppnishæfni atvinnulífsins og hjálpa fyrirtækjum og heimilum að snúa efnahagssamdrættinum í nýtt vaxtarskeið. Það styttist í Alþingiskosningar og því mikilvægt að nýta tímann vel.   

Hér er hægt að lesa grein Ingólfs í heild sinni.