Fréttasafn: 2014 (Síða 6)
Fyrirsagnalisti
Dörthe Zenker sigraði í nemakeppni Kornax í bakstri
Mesti hagvöxtur síðan 2007
Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í dag var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Endurkjörin í stjórn voru þau Bolli Árnason, GT Tækni, Vilborg Einarsdóttir, Mentor og Sigsteinn Grétarsson, Marel. Nýr í stjórn var kjörinn Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannviti.
Iðnþing 2014 - Myndbönd frá Iðnþingi
Fullt var út að dyrum á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins. Mörg spennandi og áhugaverð erindi voru flutt og fengu góðar viðtökur gesta. Hér er hægt að horfa á upptöku af þinginu.
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kynntar
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2013 voru kynntar í dag en þetta er fimmtánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 21 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 200-1300 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis.
Samskip og Nordic Visitor hljóta Menntaverðlaun atvinnulífsins 2014
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í fyrsta sinn í dag til fyrirtækja sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Samskip voru útnefnd sem Menntafyrirtæki ársins 2014 en ferðaþjónustufyrirtækið Nordic Visitor var útnefnt Menntasproti ársins 2014.
Bein útsending frá Menntadegi atvinnulífsins
Menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu verður í kastljósinu í dag á Menntadegi atvinnulífsins. Um 300 manns úr atvinnulífi, stjórnmálum og menntakerfinu hafa boðað komu sína á ráðstefnu um menntamál atvinnulífsins sem hefst kl. 13 á Hilton Reykjavík Nordica.
Skuggasveinn valinn besti leikurinn í Game Creator
Tilkynnt var um vinningshafa Game Creator – keppni um besta tölvuleikinn – á Háskóladögum í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag. Liðið Indjánagil hlaut 1. verðlaun fyrir leikinn Skuggasveinn.
Íslandsmót iðn- og verkgreina
Ályktun SI um ákvörðun ríkisstjórnar um slit á aðildarviðræðum
Samtök iðnaðarins mótmæla ákvörðun ríkisstjórnarinnar um algjör slit á aðildarviðræðum við ESB. Með henni fer ríkisstjórnin gegn stórum hópi iðnfyrirtækja sem vilja að skoðað verði til hlítar hvort samkeppnishæfni þeirra sé betur tryggð innan ESB eða utan, og hvort ekki megi ná samningum þar sem staðinn er vörður um hagsmuni Íslands.
Fyrningarfrestur krafna
Í Morgunblaðinu í dag er aðsend grein eftir Þorstein Einarsson, hæstarréttarlögmann þar sem kemur fram að almennur fyrningarfrestur krafna er fjögur ár og að öllu óbreyttu fyrnast því kröfur sem aðilar kunna enn að eiga vegna ólögmætrar gengistryggingar lánssamninga hinn 16. júní 2014.
Kaka ársins komin í bakarí um land allt
Styrkir veittir til eflingar tækni- og forritunarkennslu
Í dag verða styrkir úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar afhentir í Ráðhúsinu í Reykjavík. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhendir styrkina í viðurvist kennara og barna frá þeim grunnskólum sem hlutu styrkina að þessu sinni.
Róum í sömu átt
Menntadagur atvinnulífsins 3. mars 2014
Útboðþing 2014 - Birtir til á bygginga- og verktakamarkaði
Fullt var út úr dyrum á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins á Grand Hótel í dag. Af kynningum á fyrirhuguðum framkvæmdum má ráða að heldur sé að birta til á bygginga- og verktakamarkaði.
Tækifæri í iðnaði
Fyrstu skref samstarfsvettvangs um álklasa
Undirbúningshópur að samráðsvettvangi um álklasa hittist í fyrsta skipti í fundaraðstöðu Samtaka iðnaðarins og Samáls fimmtudaginn 13. nóvember. Þar voru saman komnir fulltrúar nokkurra lykilfyrirtækja úr ólíkum greinum, sem allar eiga það sammerkt að starfa í áliðnaðinum.