Fréttasafn



1. feb. 2021 Almennar fréttir Menntun

204 brautskráðir frá HR

204 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlegar athafnir í Hörpu síðastliðinn laugardag. Vegna samkomutakmarkana var hátíðinni skipt upp í 10 minni athafnir þar sem hámark 20 nemendur voru brautskráðir í hverri athöfn. 158 nemendur voru brautskráðir úr grunnnámi, 44 úr meistaranámi og tveir úr doktorsnámi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR. 

Af samfélagssviði útskrifuðust samtals 69 nemendur, 34 úr grunnnámi, 34 úr meistaranámi og einn doktorsnemi. 38 nemendur útskrifuðust úr viðskiptadeild, 18 úr grunnnámi, 19 úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi. Úr lagadeild útskrifuðust 23, tíu úr grunnnámi og 13 úr meistaranámi. Sálfræðideild útskrifaði sjö nemendur, sex úr grunnnámi og einn meistaranema og íþróttafræðideild útskrifaði einn meistaranema.

Af tæknisviði útskrifuðust samtals 135 nemendur, 124 úr grunnnámi, tíu úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi. 50 útskrifuðust úr grunnnámi úr iðn- og tæknifræðideild, úr verkfræðideild útskrifuðust 20 úr grunnnámi og sex úr meistaranámi og úr tölvunarfræðideild útskrifuðust 54 úr grunnnámi, fjórir úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi

Í tilkynningunni kemur fram að dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, hafi sagt í hátíðarávarpi sínu að vegna rannsókna og vísinda sé eðlilegra líf nú rétt handan við hornið. Fram undan séu ærin verkefni og fjöldi tækifæra til að skapa betra samfélag. Mikilvægt sé að nýta tækni og vísindi til að efla bæði lífsgæði og sjálfbærni. „Efasemdaraddir eru til sem segja að ekki sé bæði hægt að auka lífsgæði og halda jafnvægi við náttúruna. Því verði að fórna öðru hvoru. Þetta er ekki rétt og við Íslendingar eigum fjölmörg dæmi sem afsanna slíkar kenningar. Eitt skýrasta dæmið er uppbygging hitaveitunnar sem jók til muna lífsgæða, bætti verulega efnahagslega hagsæld og svo að segja útrýmdi brennslu kolefnis til upphitunar á Íslandi.“

Verðlaun VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur hlutu að þessu sinni: Viðar Stefánsson í rekstrarverkfræði, Jóhannes Bergur Gunnarsson í rafmagnstæknifræði, Ástríður Alda Sigurðardóttir í sálfræði, Sigurjón Þorsteinsson í tölvunarfræði og Anna Sofía Rosdahl í lögfræði. Gabríela Jóna Ólafsdóttir, BSc í tölvunarfræði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda.

Hér er hægt að horfa á upptöku frá brautskráningunni:

https://vimeo.com/504860472