Aðalfundur SI
Aðalfundur SI fór fram í Norðurljósum í Hörpu fimmtudaginn 9. mars kl. 10-12.
Á fundinum var hefðbundin dagskrá aðalfundar. Árni Sigurjónsson, formaður SI, bauð gesti velkomna. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár var kynnt og lagði framkvæmdastjóri fram til úrskurðar endurskoðaða ársreikninga samtakanna fyrir liðið almanaksár, með athugasemdum endurskoðanda. Lögð var fram tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár og launakjör stjórnarmanna. Lýst var niðurstöðum í kjöri meðstjórnenda þar sem kosið var um fjögur sæti. Einnig var kynnt kjör í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins. Þá var kosið um löggiltan endurskoðanda, kjörstjóra og aðstoðamenn. Í lok fundar var farið í önnur mál. Fundarstjóri var Guðbjörg Helga Hjartardóttir, lögmaður.
Hér er hægt að nálgast ársskýrslu SI fyrir árið 2022.
Myndir: BIG
Árni Sigurjónsson, formaður SI.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Guðbjörg Helga Hjartardóttir, lögmaður.
Valgerður Hrund Skúladóttir tilkynnti niðurstöðu kosninga.
Sigrún Helgadóttir, Guðrún Halla Finnsdóttir og Þorsteinn Víglundsson.
Lilja Björk Guðmundsdóttir og Bjartmar Steinn Guðjónsson.
Sigurður R. Ragnarsson og Björg Ásta Þórðardóttir.
Vignir Steinþór Halldórsson, Hjörtur Sigurðsson, Egill Jónsson og Arna Arnardóttir.
Sævar Jónsson, Ágúst Þór Pétursson og Örn Guðmundsson.
Jens Pétur Jóhannsson og Hjörleifur Stefánsson.
Nanna Elísa Jakobsdóttir og Bergþóra Halldórsdóttir.
Kristján D. Sigurbergsson, Valdimar Bjarnason og Friðrik Á. Ólafsson.
Jón Þórðarson og Jónína Guðmundsdóttir.
Lárus M.K. Ólafsson og Gunnar Sigurðarson.
Egill Jónsson, Kristján Sveinbjörnsson og Magnús Hilmar Helgason.
Björg Ásta Þórðardóttir.
Valgerður Hrund Skúladóttir.