Æfðu viðbragð við áföllum sem hafa áhrif á matvælaframleiðslu
Fulltrúi SI, Sigurður Helgi Birgisson viðskiptastjóri hjá SI, sat fund National Emergency Supply Agency, NESA, í Helsinki í Finnlandi í liðinni viku þar sem fór fram æfing í viðbragði við áföllum sem hafa áhrif á virðiskeðju matvælaframleiðslu.
Á æfingunni voru samankomnir 40 sérfræðingar frá Danmörku, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, sérfræðingarnir voru bæði frá hinu opinbera og atvinnulífnu. Æfingin var fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni og haldin sem hluti af formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja. Norræna ráðherranefndin leggur áherslu á að efla viðnámsþrótt norrænna samfélaga og samstarf í þeim efnum.
Sigurður Helgi Birgisson er annar frá vinstri í annarri röð, talið neðan frá.

